• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkislögreglustjóri: Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga

Myndin tengist ekki fréttinni beint

Eldgos við Grindavík fyrr á tímum

Hraun runnu á landi bæði á Reykjanesi og við Svartsengi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. nóvember 2023
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Gígaröðin sem þá gaus, Eldvörpin sjálf, er yfir 8 km löng og nær frá Svartsengi og alveg suður að ströndinni

Landhelgisgæsla Ísland hefur birt fróðleik um fyrri gos á því svæði þar sem jarðskjálftahrinur hafa staðið yfir undanfarið:

Í ljósi atburðanna við Grindavík undanfarna daga og vikur er ástæða til að rifja upp umfjöllun ÍSOR frá því í upphafi umbrotahrinunnar í febrúar 2020. Goshrinan, sem nefnd hefur verið Reykjaneseldar, gekk yfir á árabilinu 1210-1240, það er fyrir um 800 árum. Þá urðu neðansjávargos úti fyrir Reykjanesi og hraun runnu á landi bæði á Reykjanesi og við Svartsengi. Eitt þessara hrauna var Eldvarpahraun vestan Grindavíkur. Gígaröðin sem þá gaus, Eldvörpin sjálf, er yfir 8 km löng og nær frá Svartsengi og alveg suður að ströndinni við Staðarberg og þar rann hraun í sjó.

Á fjölgeisladýptarmælingum, sem Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard, hefur aflað og látið ÍSOR í té til frekari úrvinnslu, sést að hraunið hefur ekki numið staðar við ströndina heldur hefur það runnið langa leið neðansjávar og myndar þar fallegar tungur úr úfnu hrauni. Lengst nær það um 2,7 km út frá strönd og er þar komið niður á um 90 m dýpi. Hugsanlegt er að gossprungan sjálf teygi sig líka út fyrir ströndina og að þarna hafi gosið í sjó á sama tíma.

Erfitt er þó að greina neðansjávargíga en lega hraunjaðarins á hafsbotni bendir til að þar hafi hraun flætt upp um sprungu án þess að um mikla sprengivirkni hafi verið að ræða. Flatarmál hraunsins á hafsbotni er um 3,4 km2. Hraun af þessu tagi, sem runnið hafa neðansjávar, er engan veginn einsdæmi við Ísland. Hópsnesið hjá Grindavík er hluti af hrauni sem runnið hefur niður að strönd og myndað allmikinn tanga út í sjó. Það er um 8000 ára gamalt. Á myndum má sjá að það teygir sig áfram neðansjávar og myndar hrauntungu sem nær niður á um 100 m dýpi. Á hafsbotnskortum ÍSOR af Reykjaneshrygg og Kolbeinseyjarhrygg eru sýnd hraun sem runnið hafa á sjávarbotni frá gígum og gossprungum á allmiklu dýpi.

Talið er að þetta séu svokölluð bólstrabergshraun eða bólstrabreiður. Til þess að hraun geti runnið með þessum hætti þurfa þau að verja sig gegn sjávarkælingu. Þau virðast mynda einangrandi kápu úr gjalli og storknuðu bergi um leið og þau streyma fram. Ljóst er að hraunrennslið þarf að vera mikið og stöðugt til að hrauntunga nái að myndast og flæða fram á sjávarbotni. Við slíkar aðstæður myndi vera illgerlegt að stöðva hraunrennsli með sjókælingu. Bent er á frekari fróðleik um jarðfræðina og sögulegt yfirlit um hraunin á Reykjanessskaga á vef ÍSOR og í jarðfræðikortavefsjá ÍSOR.

Texti fenginn af vef ÍSOR.

401857835_915056977080115_7775330210994949888_n399653017_915057000413446_601372464890411981_n400052398_915056947080118_37331505755351473_n

Umræða
Share68Tweet43
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?