Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að lýsa yfir hættustigi vegna skriðufalla á Seyðisfirði. Um 120 manns yfirgáfu heimili sín í gær og enn er talin hætta á skriðuföllum. Gripið var til þessara aðgerða til þess að draga úr líkum á slysum á fólki, en enn má búast við eignatjóni. Enn gengur aur úr skriðusárinu í Botnum sem hefur náð inn í bæinn.
Skriða féll síðast rétt um tíuleytið í gærkvöld en ekki er talið að hún hafi valdið miklum skemmdum. Óvissustigi vegna skriðuhættu var lýst yfir á Austfjörðum í gær og er enn í gildi. Skriðuhætta er á Austurlandi vegna mikilla rigninga undanfarið og jarðvegur í neðri hluta hlíða er orðinn vatnsmettaður. Skriður hafa fallið neðarlega í hlíðum á Eskifirði, Seyðisfirði og við utanverðan Fáskrúðsfjörð. Spáð er áframhaldandi NA-átt með úrkomu.
Hættustigi er lýst yfir ef ef að heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum, þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.
Discussion about this post