• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rúmar 47 milljónir afhentar til góðra verka í þágu kvenna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. desember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Líknarsjóði Sigríðar Melsteð slitið

Á Kjarvalsstöðum, þriðjudaginn 20. desember kl. 17:00, mun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenda styrki til Kvennaathvarfsins, Rótarinnar, Menntasjóðs/Mæðrastyrksnefndar, Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Sigurhæða, Samtaka kvenna af erlendum uppruna og Stelpur Rokka.

Styrkirnir eru fjármagnaðir með sölu jarðarinnar Keldnakots sem var hluti stofnfjár líknarsjóðs Sigríðar Melsteð sem stofnaður var 1914 og hefur verið í umsjá nokkurra ráðuneyta í gegnum tíðina.

Skömmu eftir að matvælaráðuneytið var sett á laggirnar var ákveðið að slíta sjóðnum þar sem ekki var til handbært fé til úthlutunar og ekki hafði verið úthlutað úr sjóðnum til langs tíma. Með slitum sjóðsins og sölu jarðarinnar Keldnakots gafst tækifæri til að úthluta til samtaka hverra starfsemi samræmist þeim markmiðum sem sett eru í skipulagsskrá sjóðsins.

Orðalag skipulagsskrár sjóðsins ber keim af tíðaranda síns tíma en þar segir m.a.: „Líknarsjóður þessi skal vera handa ógiftum, heilsuveikum og bágstöddum konum, einkum þeim sem aldar hafa verið upp á góðum og siðprúðum heimilum, og eru siðprúðar.“

Stofnandi sjóðsins og sá sem gaf jörðina Keldnakot var Bogi Th. Melsteð,  sagnfræðingur, alþingismaður, höfundur bóka um sögu Íslands og forgöngumaður um stofnun Hins íslenska fræðafélags. Bogi var einnig aðstoðarmaður í ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn 1893–1903 og síðar styrkþegi Árnasafns í rúmlega 20 ár. Sjóðinn stofnaði Bogi í nafni frænku sinnar, Sigríðar Melsteð en þau voru bræðrabörn.

Það segir einnig nokkuð um tíðarandann að lítið sem ekkert er að finna af heimildum um Sigríði en þess meira af heimildum um Boga og föður Sigríðar, Pál Melsteð, alþingismann og sýslumann. Páll stofnaði einnig Kvennaskólann í Reykjavík ásamt konu sinni Þóru Melsteð.

Sigríður Melsteð var ein átta barna Páls Melsteð og Jórunnar Ísleifsdóttur en fimm af systkinum hennar dóu kornung. Litlar aðrar heimildir er að finna um Sigríði aðrar en þær að hún hafi verið heilsulítil og má því leiða að því líkum að það sé ástæðan fyrir því að Boga væri svo mikið í mun að heiðra minningu hennar.  Heimildum ber ekki saman um hvar Sigríður bjó en til er heimildir sem segir að börn Páls og Jórunnar hafi ekki verið á heimili Páls og seinni konu hans Þóru Melsteð en einnig finnast heimildir sem segja að Sigríður hafi jafnan dvalið hjá föður sínum.

Ljóst er að Boga var mikið í mun að halda minningu frænku sinnar á lofti en í stofnskrá segir að auki: „Sjóður þessi skal bera nafn frændkonu minnar Sigríðar Melsteð og heita „Líknarsjóður Sigríðar Melsteð“. Nafni þessu má aldrei breyta.“ Einnig stóð vilji Boga til að reist yrði heimili fyrir konur á Suðurlandi, „…að reisa vandað steinhús og heimili handa ógiftum heilsuveikum, bágstöddum konum þó eigi svo veikar að þær eigi heima á geðveikraheimili.“ Skyldi heimilið bera nafn Sigríðar Melsteð (Líknarheimili Sigríðar Melsteð) og vera á Suðurlandi, ekki „…austar en í Árnessýslu, og eigi vestar eða norðar en í Stafholtstungum í Mýrasýslu“  þar sem hægt væri um aðflutninga og var Keldnakot nefnt til sögunnar sem hugsanleg staðsetning.

Við úthlutun styrkja var einnig tekið mið af þessu ákvæði, en þau samtök sem hljóta styrk eru staðsett á tilgreindu svæði.

Ánægjulegt má telja að 114 árum eftir að sjóði með svo göfug markmið var komið á laggirnar skuli  matvælaráðherra vera kleift að styrkja samtök sem starfa í anda þeirrar hugsjónar sem lá til grundvallar við stofnun líknarsjóðs Sigríðar Melsteð.

Þau samtök sem fá úthlutun eru:

Kvennaathvarfið 18.200.000 kr
Rótin 7.650.000 kr
Menntasjóður – Mæðrastyrksnefnd 7.650.000 kr
Menningar og minningarsjóður kvenna 7.650.000 kr
Sigurhæðir 2.000.000 kr
Samtök kvenna af erlendum uppruna 2.000.000 kr
Stelpur Rokka 2.000.000 kr
Samtals úthlutað 47.150.000 kr

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?