Líknarsjóði Sigríðar Melsteð slitið
Á Kjarvalsstöðum, þriðjudaginn 20. desember kl. 17:00, mun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenda styrki til Kvennaathvarfsins, Rótarinnar, Menntasjóðs/Mæðrastyrksnefndar, Menningar- og minningarsjóðs kvenna, Sigurhæða, Samtaka kvenna af erlendum uppruna og Stelpur Rokka.
Styrkirnir eru fjármagnaðir með sölu jarðarinnar Keldnakots sem var hluti stofnfjár líknarsjóðs Sigríðar Melsteð sem stofnaður var 1914 og hefur verið í umsjá nokkurra ráðuneyta í gegnum tíðina.
Skömmu eftir að matvælaráðuneytið var sett á laggirnar var ákveðið að slíta sjóðnum þar sem ekki var til handbært fé til úthlutunar og ekki hafði verið úthlutað úr sjóðnum til langs tíma. Með slitum sjóðsins og sölu jarðarinnar Keldnakots gafst tækifæri til að úthluta til samtaka hverra starfsemi samræmist þeim markmiðum sem sett eru í skipulagsskrá sjóðsins.
Orðalag skipulagsskrár sjóðsins ber keim af tíðaranda síns tíma en þar segir m.a.: „Líknarsjóður þessi skal vera handa ógiftum, heilsuveikum og bágstöddum konum, einkum þeim sem aldar hafa verið upp á góðum og siðprúðum heimilum, og eru siðprúðar.“
Stofnandi sjóðsins og sá sem gaf jörðina Keldnakot var Bogi Th. Melsteð, sagnfræðingur, alþingismaður, höfundur bóka um sögu Íslands og forgöngumaður um stofnun Hins íslenska fræðafélags. Bogi var einnig aðstoðarmaður í ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn 1893–1903 og síðar styrkþegi Árnasafns í rúmlega 20 ár. Sjóðinn stofnaði Bogi í nafni frænku sinnar, Sigríðar Melsteð en þau voru bræðrabörn.
Það segir einnig nokkuð um tíðarandann að lítið sem ekkert er að finna af heimildum um Sigríði en þess meira af heimildum um Boga og föður Sigríðar, Pál Melsteð, alþingismann og sýslumann. Páll stofnaði einnig Kvennaskólann í Reykjavík ásamt konu sinni Þóru Melsteð.
Sigríður Melsteð var ein átta barna Páls Melsteð og Jórunnar Ísleifsdóttur en fimm af systkinum hennar dóu kornung. Litlar aðrar heimildir er að finna um Sigríði aðrar en þær að hún hafi verið heilsulítil og má því leiða að því líkum að það sé ástæðan fyrir því að Boga væri svo mikið í mun að heiðra minningu hennar. Heimildum ber ekki saman um hvar Sigríður bjó en til er heimildir sem segir að börn Páls og Jórunnar hafi ekki verið á heimili Páls og seinni konu hans Þóru Melsteð en einnig finnast heimildir sem segja að Sigríður hafi jafnan dvalið hjá föður sínum.
Ljóst er að Boga var mikið í mun að halda minningu frænku sinnar á lofti en í stofnskrá segir að auki: „Sjóður þessi skal bera nafn frændkonu minnar Sigríðar Melsteð og heita „Líknarsjóður Sigríðar Melsteð“. Nafni þessu má aldrei breyta.“ Einnig stóð vilji Boga til að reist yrði heimili fyrir konur á Suðurlandi, „…að reisa vandað steinhús og heimili handa ógiftum heilsuveikum, bágstöddum konum þó eigi svo veikar að þær eigi heima á geðveikraheimili.“ Skyldi heimilið bera nafn Sigríðar Melsteð (Líknarheimili Sigríðar Melsteð) og vera á Suðurlandi, ekki „…austar en í Árnessýslu, og eigi vestar eða norðar en í Stafholtstungum í Mýrasýslu“ þar sem hægt væri um aðflutninga og var Keldnakot nefnt til sögunnar sem hugsanleg staðsetning.
Við úthlutun styrkja var einnig tekið mið af þessu ákvæði, en þau samtök sem hljóta styrk eru staðsett á tilgreindu svæði.
Ánægjulegt má telja að 114 árum eftir að sjóði með svo göfug markmið var komið á laggirnar skuli matvælaráðherra vera kleift að styrkja samtök sem starfa í anda þeirrar hugsjónar sem lá til grundvallar við stofnun líknarsjóðs Sigríðar Melsteð.
Þau samtök sem fá úthlutun eru:
Kvennaathvarfið | 18.200.000 kr |
Rótin | 7.650.000 kr |
Menntasjóður – Mæðrastyrksnefnd | 7.650.000 kr |
Menningar og minningarsjóður kvenna | 7.650.000 kr |
Sigurhæðir | 2.000.000 kr |
Samtök kvenna af erlendum uppruna | 2.000.000 kr |
Stelpur Rokka | 2.000.000 kr |
Samtals úthlutað | 47.150.000 kr |