Verkefni lögreglu hafa verið nokkuð hefðbundin síðasta sólarhring, segir í dagbók lögreglunnar. Fimm ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og sex undir áhrifum áfengis. Einn ökumaður var vistaður í fangaklefa því hann hafði orðið valdur að umferðaróhappi.
Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu en engin þeirra telst vera meiriháttar. Fjórir einstaklingar gista fangageymslur í tengslum við þessar líkamsárásir. Einn var handtekinn við að brjótast inn í bifreiðar í miðbænum og verður hann yfirheyrður í dag.
Lögreglan hafði upp á einum einstakling sem hafði greinst jákvæður fyrir covid-19 við komuna til landsins en hann hafði ekki sinnt reglum um einangrun. Maðurinn var fluttur í sóttvarnarhús.