Hugleiðingar veðurfræðings
Talsverð snjókoma með takmörkuðu eða lélegu skyggni. Búast má við versnandi akstursskilirðum og afmörkuðum samgöngutruflunum. Hægt minnkandi norðanátt í dag, síðdegis verður þó enn strekkings vindur suðaustan- og austantil á landinu. Él norðan- og austanlands, annars víða bjart. Frost 4 til 12 stig.
Í kvöld nálgast smálægð úr vestri og það fer að snjóa vestast. Í nótt og fram eftir degi á morgun er útlit fyrir snjókomu um landið suðvestanvert, þeim sem hyggja á ferðalög í þeim landsfjórðungi er bent á að fylgjast með fréttum af færð og veðri. Áfram má búast við éljum norðan heiða, einkum við ströndina.
Kalt í veðri og líklegt að frostið nálgist 20 stig í innsveitum norðaustanlands. Spá gerð: 17.01.2024 06:29. Gildir til: 18.01.2024 00:00.
https://www.vedur.is/vidvaranir
Veðurhorfur á landinu
Minnkandi norðanátt, 8-15 m/s suðaustan- og austantil síðdegis, annars hægari vindur. Dálítil él, en lengst af þurrt sunnan heiða. Frost yfirleitt 4 til 12 stig. Fer að snjóa á Vesturlandi seint í kvöld.
Norðlæg eða breytileg átt 5-13 og allvíða él norðanlands á morgun. Snjókoma fram eftir degi um landið suðvestanvert, en á Suðausturlandi síðdegis. Frost 3 til 18 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Spá gerð: 17.01.2024 10:34. Gildir til: 19.01.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, stöku él og talsvert frost. Vaxandi austanátt sunnantil á landinu eftir hádegi og hlýnar, 15-23 og snjókoma eða slydda þar seint um kvöldið.
Á laugardag:
Vestlæg eða breytileg átt, yfirleitt 3-8 m/s og snjókoma eða slydda með köflum, en styttir upp á sunnanverðu landinu er líður á daginn. Hiti um eða undir frostmarki.
Á sunnudag:
Norðanátt og dálítil él norðanlands, en suðlæg átt og skýjað með köflum sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Norðlæg átt, él og kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir breytilega átt með lítilsháttar éljum við suðaustur- og austurströndina.
Spá gerð: 17.01.2024 08:01. Gildir til: 24.01.2024 12:00.