• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Viðræðum jafnvel slitið á fimmtudag og verkföll undirbúin

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Núna er bara staðan einfaldlega orðin þannig að hún er grafalvarleg – Ég vona svo sannarlega að atvinnurekendur og síðast en ekki síst stjórnvöld, geri sér grein fyrir sinni ábyrgð“

,,Stjórnvöld gera sér ekki grein fyrir alvarleika stöðunnar, sagði formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti Alþýðusambandsins“ í viðtali við Rúv í dag. ,,Ef stjórnvöld fari ekki að sýna tillögur sínar til að liðka fyrir kjarasamningum blasir við að kjaraviðræðum við atvinnurekendur verði slitið á fimmtudag og undirbúningur verkfalls hefjist. Verkfall gæti hafist í byrjun mars.“
Vilhjálmur Birgisson sem er formaður Verkalýðsfélags Akraness og fyrsti varaforseti Alþýðusambandsins sagði jafnframt:
„Því miður held ég að stjórnvöld geri sér ekki grein fyrir þeim alvarleika á þeirri stöðu sem upp er komin. Núna er bara staðan einfaldlega orðin þannig að hún er grafalvarleg. Til þess að við í verkalýðshreyfingunni getum vegið og metið hvort það sé ástæða til þess að halda áfram þessum viðræðum verðum við að fá að sjá þær útlínur sem stjórnvöld hafa í hyggju að leggja til þess að liðka fyrir þessum kjarasamningum.
Ef þau ekki gera það þá held ég að það blasi við að viðræðum verður slitið næsta fimmtudag og menn munu hefja undirbúning að boðun verkfalls. Þannig er bara staðan. Ég myndi nú halda það að ef þetta fer allt á versta veg þá getum við farið að sjá hér verkföll fyrstu vikuna í mars, aðra vikuna í mesta lagi.
En núna er verkefnið að leysa þetta og við í verkalýðshreyfingunni gerum okkur grein fyrir okkar ábyrgð. Ég vona svo sannarlega að atvinnurekendur og síðast en ekki síst stjórnvöld, geri sér grein fyrir sinni ábyrgð,“ sagði Vilhjálmur.
Aðspurður um ef að málin færu á versta veg og hversu margir mundu þá leggja niður störf? Svaraði Vilhjálmur: „Það er bara eitthvað sem við erum að vega og meta og skoða núna hvernig við förum í þessar aðgerðir. En það er alveg ljóst að þær munu hafa víðtæk áhrif ef við þurfum að beita verkfallsvopninu. Það er alveg ljóst,“ segir Vilhjálmur.

,,Það verður fróðlegt að sjá Vinstri græn og Framsóknarflokkinn fylgja Sjálfstæðisflokknum í að hunsa alþýðuna og verkalýðshreyfinguna“

Þá fjallar Vilhjálmur einnig um ummæli Bryndísar Haraldsdóttur sjálfstæðiskonu þegar að hún sagði að launæegahreyfingar hefðu ekkert um stjórn landsins að gera, hvorki skattamál eða annað : ,,Þetta er dapurt og sorglegt að sumir þingmenn í þingflokki Sjálfstæðismanna skuli hafa þessa afstöðu til verkafólks á íslenskum vinnumarkaði og hafi ekki skynbragð á þeirri alvarlegu stöðu sem blasir við á íslenskum vinnumarkaði. Það mætti halda að einstaka þingmenn í þingflokkurinn líti á verkafólk sem grálúsugt sem eigi að hafa vit á því að þegja, borga og brosa!
Þessum þingmanni finnst það alveg ótrúlegt að verkalýðshreyfingin sé að kalla eftir kerfisbreytingum þar sem hagsmunir alþýðunnar og heimilanna verði teknir framyfir hagsmuni fjármálakerfisins, en eins og allir vita hafa fjármálafyrirtækin rekið ryksugubarkann ofan í launaumslag alþýðunnar og sogað stóran hluta ráðstöfunartekna til sín.

Allir vita að það er verið að skattleggja fátækt á Íslandi, enda greiðir einstaklingur á lágmarkslaunum um 52 þúsund á mánuði í skatta þrátt fyrir að lágmarkslaun dugi ekki fyrir lágmarksframfærsluviðmiðum sem hið opinbera hefur gefið út.
Kemur verkalýðshreyfingunni það ekki við að verðið sé að skattleggja okkar lágtekjufólk með þessum hætti? Er eitthvað að því að við gerum þá sjálfsögðu kröfu að skattbyrði á lág og lægri milltekjufólki verða lækkað umtalsvert til að auka ráðstöfunartekjur þessa fólks sem er á launum sem duga ekki fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar.
Það er dapurt þetta viðhorf frá fulltrúum sjálfstæðismanna í garð þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi, en þeim virðist hafa fundist það bara í góðu lagi að Viðskiptaráð hafi fyrir hrun montað sig af því að hafa náð yfir 90% af sínum hagsmunamálum í gegnunum löggjafann. Enda virðast fulltrúar vissra stjórnmálaflokka miklu frekar vilja halla sér upp að forréttendahópunum þar sem ríka og fræga fólkið ræður ríkjum!
Það verður fróðlegt að sjá Vinstri græn og Framsóknarflokkinn fylgja Sjálfstæðisflokknum í að hunsa alþýðuna og verkalýðshreyfinguna í ljósi þess að þessir flokkar hafa viljað kenna sig við alþýðuna og félagshyggju! En mér sýnist á þessum viðbrögðum að það stefni í gríðarlega hörð verkfallsátök á íslenskum vinnumarkaði, enda sýnist mér að sumir þingmenn og ráðherrar séu með bundið fyrir bæði augun gagnvart þeirri grafalvarlegu stöðu sem blasir við á íslenskum vinnumarkaði.

Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/02/16/rikisstjornin-tharf-ad-velja-a-milli-ad-afnema-verdtrygginguna-eda-hord-langtima-verkfoll/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?