Interpol hefur að beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lýst eftir Pétri Jökli Jónassyni. Hann er grunaður um tilraun til að smygla 99,25 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Íslands.
Tilraunir lögreglu til að hafa uppi á Pétri Jökli tengjast stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar sem rekið var fyrir dómstólum í fyrra. Þá voru fjórir sakborningar dæmdir í sex til tíu ára fangelsi. Verjandi eins þeirra sagði þá að fjórmenningarnir væru aðeins lítil peð í stórri keðju. Réttað var í því máli vegna smygls á 99,25 kílóum af kókaíni sem uppgötvuðust í Hollandi eftir ábendingu frá lögreglu á Íslandi. Þeim var smyglað í trédrumbum frá Brasilíu og áttu að fara til Íslands.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti í samtali við fréttastofu rúv, að Pétur Jökull sé grunaður um aðild að málinu en tjáði sig ekki um hvernig þeirri aðild er háttað. Grímur sagði að lögregla þyrfti að ná tali af Pétri vegna málsins en það hefði ekki tekist til þessa. Hann sagði ekki fleiri liggja undir grun sem lögregla hefði ekki náð tali af.
Pétur Jökull á langan brotaferil að baki. Á vef héraðsdómstólanna má finna þrjá dóma yfir honum, þann fyrsta frá 2007. Þá var Pétur Jökull dæmdur til sektargreiðslu fyrir vörslu fíkniefna. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi 2010 fyrir smygl á 1,6 kílóum af kókaíni frá Spáni til Íslands. Ári síðar var hann dæmdur fyrir rán og fékk fimm mánaða dóm.
Meðal þess sem Pétur Jökull hefur fengist við um ævina er tónlist. Hann var um skeið hljómborðsleikari í Dr. Mister Mister Handsome.