Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var tvívegis kölluð út í gær. Um miðjan dag var óskað eftir aðstoð þyrlusveitar vegna manns sem slasaðist í fjalllendi í nágrenni Ólafsfjarðar.
Áhöfnin var á Reykjavíkurflugvelli og gat brugðist hratt við. Björgunarsveitarmenn á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar huguðu að hinum slasaða þar til þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið. Maðurinn var hífður um borð í þyrluna og fluttur á Landspítalann í Fossvogi.
Þá var einnig óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar um hádegisbil í gær vegna bráðra veikinda á Mýrum. Meðfylgjandi myndir sína frá aðstæðum á vettvangi, bæði fyrir norðan og vestan.
Umræða