• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjókomubakki færist yfir landið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. mars 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag verður hæglætis veður framan af, en sums staðar él fyrir norðan og allra syðst. Undir kvöld færist snjókomubakki yfir Suðausturland. Í gær var að sjá að það gæti snjóað allnokkuð á Suðurlandi og jafnvel á Faxaflóasvæðinu, en svona er þetta stundum. Spár breytast og telst þetta til minniháttar breytinga þótt það hafi mikil áhrif á okkur sem búum á Höfuðborgarsvæðinu. Á morgun verður vindur norðlægur á vesturhelmingi landsins, en suðaustlægur fyrir austan. Éljagangur nokkuð víða og frost um mest allt land.

Veðurhorfur á landinu
Austlæg átt 3-8 m/s í dag. Skýjað að mestu og snjókoma með köflum norðaustanlands. Slydda eða snjókoma suðaustantil í kvöld.
Norðlæg átt 8-13 þegar líður á morgundaginn, fyrst norðvestantil. Snjókoma með köflum eða él, en þurrt suðvestanlands.
Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en sums staðar frostlaust syðst.
Spá gerð: 17.03.2023 10:47. Gildir til: 19.03.2023 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s, en hvassari vindstrengir austast. Víða bjartviðri, en stöku él norðaustantil í fyrstu og syðst síðdegis. Frost 2 til 13 stig, kaldast inn til landsins, en hiti í kringum frostmark með suðurströndinni.

Á mánudag:
Hæg austlæg átt, yfirleitt léttskýjað og talsvert frost, en austanhvassviðri syðst stöku él og mildara.

Á þriðjudag:
Austan 8-15 m/s, en hvassara syðst. Skýjað sunnan- og austantil og stöku él, annars bjart með köflum. Frost 2 til 12 stig, en mildara suðvestanlands yfir hádaginn.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir austan- og norðaustanátt og víða dálítil él, en léttskýjað suðvestantil. Áfram kalt í veðri. Spá gerð: 17.03.2023 08:41. Gildir til: 24.03.2023 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?