• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 3. október 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Starfsemi Hundaræktunar í Dalsmynni stöðvuð

ritstjorn by ritstjorn
17. apríl 2018
in Óflokkað
0
Share on FacebookShare on Twitter

Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um stöðvun starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni á grundvelli laga um velferð dýra. Ástæða stöðvunar er að kröfur stofnunarinnar um varanlegar úrbætur hafa ekki verið virtar, einkum varðandi þjálfun, umönnun og umhirðu hundanna þ.m.t. hreinlæti og skráningar. Viðhaldi húsnæðis var sömuleiðis ábótavant.


Aðgerðir og áætlanir vegna ormameðhöndlunar hunda ásamt sýnatökum voru sömuleiðis ekki fullnægjandi.
Með ákvörðuninni er starfsemin í hundahúsum að Dalsmynni bönnuð, þ.m.t. innflutningur hunda, pörun, ræktun, got og annað hundahald sem ætlað er til ræktunarinnar eða tengist starfseminni, sem og pössun og geymsla á hundum.
Óheimilt verður að nýta húsin undir hundahald nema að undangenginni úttekt stofnunarinnar þar sem viðhald og ástand húsa sem notuð hafa verið undir starfsemina er ekki viðunandi m.t.t. þrifa og sótthreinsunar, sérstaklega út frá smiti með orminum Strongyloides stercoralis.
Hundaræktuninni hefur verið veittur frestur til eins mánaðar til að ráðstafa hundum að Dalsmynni og komast þannig hjá vörslusviptingu hunda af hálfu Matvælastofnunar.
Matvælastofnun hefur áður haft afskipti af starfseminni og um endurtekin brot er að ræða. Dreifingarbanni Matvælastofnunar árið 2014 var aflétt þegar kröfum stofnunarinnar um úrbætur hafði verið sinnt og gripið hafði verið til nauðsynlegra aðgerða til halda niðri smiti af völdum þráðorma og annarra iðrasýkinga sem greinst hafa þar.
Fréttatíminn skrifaði grein fyrir stuttu um hundaframleiðslu á Dalsmynni.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/20/03/mikil-reidi-vegna-hundaframleidslu-dalsmynni/
 
 

  • Afborganir hafa hækkað um 94%

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 750 ökumenn myndaðir við grunnskóla

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hærri stýrivextir, hærri verðbólga!

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?