Samkvæmt könnun sem gerð var í vikunni, kemur fram að það er langt því frá einhugur á meðal þjóðarinnar um að kjósa sitjandi forseta, Hr. Guðna Th. Jóhannesson í væntanlegum forsetakosningum. Könnunin sem gerð var af stjórnendum hins virta og gamalgróna þáttar, Reykjavík síðdegis hafa svo lengi sem menn muna, gert mjög svo raunhæfar kannanir. Enda gengur þátturinn út á það að vera daglega með puttann á púlsi íslensku þjóðarinnar og fjalla um málefni líðandi stundar og endurspeglar þátturinn oftar en ekki huga þjóðarsálarinnar.
Könnunin sýnir með afgerandi hætti að þjóðin er klofin í tvennt varðandi stuðning við núverandi forseta en aðeins 53.3% segjast vilja Guðna sem forseta áfram en 46.7% vilja kjósa bara einhvern annan í stól forseta.
Sérstaka athygli vekur að þjóðin kýs að velja bara einhvern annan sem forseta en enginn sérstakur mótframboðandi er nefndur í könnunni og það verður fróðlegt að fylgjast með þegar mótframbjóðandi verður nefndur, hvaða áhrif það mun hafa.
Nýta málskotsréttinn til að auka lýðræði
Fréttablaðið hefur verið mjög spennt fyrir Guðmundi Franklín Jónssyni sem mögulegum forsetaframjóðanda en hann hefur þó ekki enn tilkynnt um forsetaframboð sitt.
Í tilefni ítrekaðra greina blaðsins sem er mjög upptekið af hugsanlegu mótframboði gegn sitjandi forseta, þar sem fjallað er um Guðmund Franklín sem mögulegan forsetaframbjóðanda. Sagði Guðmundur Franklín þetta í athugasemd við neðangreinda frétt, Fréttatímans í vikunni:
,,Það gleður mig þó að sjá hversu spenntir þeir eru fyrir mögulegu forsetaframboði mínu þar sem ég hef ekki farið í grafgötur með andúð mína á Evrópusambandinu sem og að segja spillingunni á Íslandi stríð á hendur.
Eins er ég mjög ákveðinn þegar kemur að því að forseti eigi að nýta málskotsréttinn til að auka beint lýðræði í landinu.“
Mögulegur forsetaframbjóðandi á móti spillingunni og kvótakerfinu
https://gamli.frettatiminn.is/mogulegur-forsetaframbjodandi-a-moti-spillingunni-og-kvotakerfinu/?fbclid=IwAR3ANEha7dKx9tnTHRhSBKnZUFP1E0524tystdysthC44aCEJaHBDWI5X6A