• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 19. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Græðgisvæðing bílastæða

Klukkutími 660 kr. og vangreiðslugjald 7.500 kr.

FÍB hvetur Neytendastofu til að taka á ófremdarástandi á bílastæðum - Græðgisvæðing bílastæða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

FÍB hefur óskað eftir aðgerðum af hálfu Neytendastofu vegna ófremdarástands við gjaldtöku á bílastæðum

Í kvörtun FÍB er dæmi tekið af bíleiganda sem var krafinn um vanrækslugjald þrátt fyrir að hafa þá þegar verið búinn að borga fyrir stæðið. FÍB telur innheimtufyrirtæki bílastæða varpa ábyrgð af óskýrleika í greiðsluöppum með ósanngjörnum hætti á herðar neytenda.

FÍB segir fjölda félagsmanna hafa haft samband til að kvarta undan vanrækslugjöldum sem þeir fá vegna þess að bílastæði óskyldra aðila liggja hlið við hlið og auðvelt að ruglast á þeim.

Í bréfinu til Neytendastofu telur FÍB að margt í vinnubrögðum innheimtufyrirtækjanna flokkist undir villandi og óréttmæta viðskiptahætti.

FÍB beinir gagnrýni sinni sérstaklega að fyrirtækinu Parka lausnum ehf, sem rekur Parka appið, og systurfyrirtæki þess Myparking ehf, sem rekur fjölmörg bílastæði í einkaeigu. Myparking ehf. sendir kröfu um vanrækslugjöld í heimabanka bíleigenda án nokkurra skýringa eða upplýsinga um fyrirtækið. Auðvelt er að ruglast á bílastæðum óskyldra aðila í Parka appinu. Þá leggja skilmálar Parka appsins alla ábyrgð á herðar notenda og standast ekki kröfur um góða viðskiptahætti. Neytendastofa er hvött til að kanna réttmæti þessara skilmála.

Áður hefur FÍB bent á vaxandi græðgisvæðingu á bílastæðum í einkaeigu, þar sem farið er að innheimta háar fjárhæðir fyrir afnot bílastæða allan sólarhringinn. Og eftir því sem þrengir að bílastæðum í miðborg Reykjavíkur hækka bílastæðagjöldin. Í bílakjallara Hafnartorgs kostar hver klukkutími 660 kr og vangreiðslugjald er komið í 7.500 kr. Mikill ruglingur myndast þegar bílum er ekið á milli bílakjallara Hafnartorgs og Hörpu og hafa bíleigendur fengið fjárkröfur vegna þess. Víða skortir verðupplýsingar, þrátt fyrir lagaskyldu þar um.

Þá hefur FÍB gagnrýnt frumskóg greiðsluleiða fyrir bílastæði. Engin ein greiðsluleið virkar í öll bílastæði eða bílahús. Bíleigendur þurfa að hlaða niður a.m.k. fjórum mismunandi öppum og skrá greiðslukort sín í þau. FÍB telur þetta flækjustig greiðsluleiða koma í veg fyrir samkeppni og gangi því gegn hagsmunum almennings.

Græðgisvæðing bílastæða

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Krónan hrynur og er áhættugjaldmiðill – „Tími krónunnar er liðinn“

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    108 deilingar
    Share 43 Tweet 27
  • Katrín sér ekki eftir neinu, nema tapinu í forsetakosningunum

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Barn í lífshættu á þunnri íshellu

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?