Borgarráð neitar að styrkja fátækar og efnalitlar fjölskyldur
Borgarráð hafnaði á fundi sínum að styðja Fjölskylduhjálp Íslands fyrir árið 2018. Ásgerður Jóna Flosadóttir vekur athygli á málinu og segir að það skjóti skökku við að samtökin fái ekki styrk. Þar sem að um er t.d. að ræða einu hjálparsamtökin sem voru með opið í allt sumar, og úthlutaði t.d. 23.000 matargjöfum í fyrra auk annara úthlutana sem að nauðsynlegar eru þeim fjölmörgu fjölskyldum sem að glíma við fátækt á Íslandi.
,, Afgreiðslu Borgarráðs í dag um styrk til Fjölskylduhjálpar Íslands. NEI. Enginn styrkur árið 2018. Stingur mann í hjartastað. Vorum einu hjálparsamtökin með opið í allt sumar, fátækir og efnalitlar fjölskyldur þurfa líka að borða á sumrin. Úthlutuðum hátt í 23.000 matargjöfum árið 2017.“ Segir Ásgerður Jóna Flosadóttir vegna synjunar Borgarráðs um styrk upp á aðeins tvær milljónir króna.
Tengt efni :
https://gamli.frettatiminn.is/2018/08/01/fjolga-tharf-fataekrahverfum-i-reykjavik-ny-braggahverfi-eru-lausnin-100-ara-afturfor/