Umferðarmál hafa verið mikið til umræðu að undanförnu og fjallað hefur verið t.d. um framkvæmdir ofl. í borginni sem að hafa torveldað umferð. Gagnrýnt hefur verið hvernig er staðið að málum og skipulagi í borginni. Mikil uppbygging er við hverfi 101 t.d. sem að var miðja Reykjavíkur fyrir mörgum áratugum og er þar nú verið að reisa nýjan Landsspítala með tilheyrandi aukningu á bílaumferð nú þegar og í framtíðinni svo eitthvað sé nefnt. Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd og m.a. bent á að staðarvalið sé tímaskekkja þar sem að miðja Höfuðborgarsvæðisins hefur færst marga kílómetra frá hverfi 101. Heilu hverfin eru að rísa með tilheyrandi álagi á gatnakerfið en breytingar á gatnakerfinu breytast ekki að sama skapi. Eyþór Arnalds borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fjallar um málið:
Það styttist í að skólarnir fari aftur af stað. Umferðin mun þá þyngjast enn meira en nú er. Stífla til vesturs á morgnanna. Þung umferð til austurs seinnipart dags.
Það er sérstakt rannsóknarefni hvernig umferðin í Reykjavík er á köflum eins og í stórborg. Hér búa aðeins 130 þúsund manns en samt tekst borgaryfirvöldum að koma upp umferðartöfum sem jafnast á við milljónaborgir. Í sumar var ég í Kaupmannahöfn, þar sem mun fleiri búa. Þar gengur umferðin vel fyrir allar tegundir fararmáta. Það mætti læra af því. Í öllum helstu borgum er ljósum stýrt með nútímatækni. Lagt er upp með að stöðva umferð ekki að óþörfu, enda enginn spenntur fyrir því að eyða óþarfa tíma í umferðarsultu eða biðröð að óþörfu.
Í Reykjavík hefur götum verið lokað vegna framkvæmda árum saman. Hér má nefna Hverfisgötuna, sem enn og aftur er lokuð vegna framkvæmda borgarinnar sjálfrar. Í stað þess að samræma framkvæmdir og stytta lokunartímann verulega er lokað í áföngum. Vonarstræti og Lækjargötu hefur verið lokað að hluta til að auðvelda verktökum. Gömlu Hringbraut hefur verið alfarið lokað á alla umferð næstu árin. Þetta verklag þætti undarlegt í borgum eins og Kaupmannahöfn eða London. Af hverju eru þessi mál komin í öngstræti á tækniöld árið 2019? Getur verið að það sé viljandi gert? Getur verið að borgaryfirvöld séu að auka á vandann að ósekju með vilja?
Lausnirnar liggja fyrir
Umferð er ekki sér-reykvískt vandamál. En hér hefur það verið magnað upp. Ein af ástæðunum er þau skipulagsmistök sem við horfum upp á. Enn er verið að byggja upp stofnanir og höfuðstöðvar í miðborg Reykjavíkur. Slíkt eykur á skipulagshalla borgarinnar og enn fleiri þurfa að ferðast í vestur á morgnana og í austur síðdegis. Í stað þess að nýta Keldur og Keldnalandið er áfram farið í að þétta á skökkum stöðum. Í stað þess að efla austurborgina með uppbyggingu atvinnutækifæra í Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi er öllu smalað á þrengsta blettinn.
Snjallvæðing er talsvert vinsæl í orði en ekki er að sjá hana á borði í umferðarstýringu. Ljósastýring er kapítuli út af fyrir sig, en allir þeir sem hafa ekið Geirsgötuna finna á eigin skinni hve illa þeim málum hefur verið stýrt. Sú ákvörðun að setja hana ekki í stokk þegar á uppbyggingu stóð, eins og ákveðið hafði verið að gera, reynist dýr mistök.
Er ekki kominn tími til að nútímavæða umferðina í Reykjavík og hugsa í lausnum sem virka? Sú árátta að telja okkur geta skattlagt okkur út úr umferðarvandanum er röng. Hún er einfaldlega enn ein gjaldtökuleið vinstrimanna sem hafa hækkað álögur á flesta í Reykjavík. Hækkandi gjöld og skattar hafa ýtt fyrirtækjum og heimilum út úr borginni.
Hugmyndir um tvöfalda gjaldtöku á höfuðborgarsvæðið eru ekki lausn, hvað þá réttlæti. Þeir sem flytjast á Selfoss og í Reykjanesbæ og sækja vinnu eða þjónustu til Reykjavíkur auka enn á umferðarþungann.
Allt ber þetta að sama meiði; aðgerðir borgarstjórnar þyngja umferð og hækka kostnað. Það er rétt að hafa þetta í huga þegar ferðast er innan borgarinnar á næstunni.