• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hundar og önnur dýr á gosstöðvum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Eftir að gos hófst að nýju á Reykjanesinu hefur umferð fólks á gosstöðvarnar verið mikil. Það er enn ástæða til þess að Matvælastofnun ræður fólki eindregið frá því að taka hunda með á gosstöðvarnar í Merardölum/Geldingadölum. Það er síst minni mengun á svæðinu en áður, bæði gas og önnur efni sem geta haft skaðleg áhrif á hunda jafnt sem fólk. Jafnframt er hætta á ýmis konar slysum.

Á gossvæðinu er töluvert mikið áreiti, bæði hljóð og lykt, flugvélar, þyrlur og drónar og mikið af fólki, þannig að margir hundar geta orðið stressaðir. Rannsóknir Jarðvísindastofnunar og Veðurstofunnar á regnvatni á svæðinu hafa sýnt mikla efnamengun. Meðal annars hefur flúrsýra greinst langt yfir neysluvatnsviðmiðum, allt að 60 falt magn. Einnig mælist mikil saltsýra og sýrustig er mjög lágt. Ef hundar drekka vatn á svæðinu, éta snjó, eða sleikja þófa getur það haft neikvæð heilsufarsleg áhrif. Saltsýra og lágt sýrustig á yfirborði getur ert þófa og sært. Hundur með sára þófa sleikir þá gjarnan og efnin geta borist í hundinn.

Ef fólk velur, þrátt fyrir þessar aðvaranir, að taka hunda með biðjum við það sérstaklega að hafa í huga fjögur afar mikilvæg atriði fyrir öryggi hundsins og annarra:

  1. Ekki láta hundana drekka úr vatnspollum, né éta snjó á svæðinu! Vatnið getur verið mengað af alls kyns skaðlegum efnum. Hafið með drykkjarvatn og skál og bjóðið hundinum eftir þörfum að drekka úr skálinni.
  2. Reynið að koma í veg fyrir að hundarnir sleiki feld eða þófa fyrr en skolað hefur verið af þeim með vatni eftir að komið er af gossvæðinu.
  3. Hafið hundana ávallt í taumi! Lausir hundar geta hlaupið í lægðir þar sem er gas og jafnvel á hraunið. Lausir hundar geta líka valdið öðru fólki hættu og óþægindum á leiðinni með því að koma því úr jafnvægi eða velta á það grjóti.
  4. Ekki fara mjög nálægt hrauninu með hund! Hundarnir eru töluvert lægri en við og geta fengið í sig mikið meira gas. Haldið ykkur ofarlega í brekkunni með vindinn í bakið.

Ítarefni

  • Viðbúnaður dýraeigenda vegna náttúruhamfara – frétt Matvælastofnunar 02.03.21
  • Plakat Matvælastofnunar um hunda og eldgosið
  • Frétt Matvælastofnunar 30.03.3021
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?