Fréttatilkynning vegna verkefna lögreglu á tímabilinu 19:00 16.8.24 til 07:00 17.8.24
- 83 mál voru afgreidd hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu.
- Sex ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og eða vímuefna á höfuðborgarsvæðinu.
- Þrír urðu að gista fangageymslur vegna brots gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur þar sem þeir sköpuðu ónæði á miðborgarsvæðinu vegna ölvunar.
- Þrjár minniháttar líkamsárásir voru skráðar á tímabilinu, af þeim tvær tengdar skemmtanahaldi.
- Lögregla var kölluð til í þremur aðskildum verkefnum í vesturbæ Reykjavíkur þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi með hníf. Einn var handtekinn og gistir fangageymslur vegna rannsóknar slíks máls. Naut lögreglan aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra við úrlausn verkefnanna.
- Lögregla ætlaði sér að ná tali af manni vegna rannsókn máls í 101 Reykjavík. Sá tók hins vegar til fótanna þegar lögregla reyndi að ræða við hann. Lögreglumenn náðu til hans eftir skamma eftirför en kom þá í ljós að hann var ekki grunaður um neitt brot og gat hann sjálfur ekki gefið góðar skýringar á því af hverju hann hljóp frá lögreglu.
- Aðili var handtekinn eftir innbrot í bílasölu og tókst honum að hafa á brott með sér tvo kassa fulla af bíllyklum. Hann var handtekinn skammt frá staðnum og tókst lögreglu að endurheimta lyklana.
- Lögreglumenn í Hafnafirði sátu við umferðareftirlit hluta vaktar. Einn var mældur á 151kmh þar sem hámarkshraði er 80 og tveir á 120kmh.
Umræða