Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa í samráði við eigendur The Irishman Pub, Klapparstíg 27 ákveðið að greina frá nafni veitingastaðarins þar sem talið er að fjöldi fólks hafi verið útsett fyrir COVID-19 smiti föstudagskvöldið 11. september síðastliðinn.
Rétt er að taka fram að ekkert bendir til þess að sóttvörnum hafi verið áfátt á veitingastaðnum sem um ræðir. Hætta á smiti er ávallt til staðar þar sem fjöldi fólks kemur saman.
Nauðsynlegt er að hafa uppi á þeim sem þar voru til þess að koma í veg fyrir frekar útbreiðslu veirunnar. Er þeim sem sóttu ofangreindan stað umræddan dag á milli klukkan 16:00 og 23:00 því boðið að mæta í sýnatöku. Á morgun, föstudaginn 18. september, geta þeir sem þar voru farið á heimasíðuna wwww.heilsuvera.is og skráð sig í sýnatöku.
Sóttvarnalæknir og almannavarnir biðla til þeirra sem sóttu ofangreindan stað á umræddum degi að hafa hægt um sig þar til sýnataka hefur farið fram og neikvæð niðurstaða liggur fyrir.
Helstu einkenni veirunnar eru:
- Hiti
- Hósti
- Bein- og vöðvaverkir og þreyta.
- Meltingareinkenni (kviðverkir,ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt.
- Breyting eða tap á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30% sjúklinga.