• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2020

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
17. október, 2020
0 0
Veiðitímabil rjúpu verður frá 1. – 30. nóvember í ár og er því það sama og á síðasta ári, eins og ákveðið var með reglugerð. Heimilt er að veiða fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðjudags, en veiðibann er á miðvikudögum og fimmtudögum. Ítrekað er að sölubann á rjúpum er áfram í gildi og eru veiðimenn hvattir til hófsemi í veiðum.

Fyrir liggja tillögur Umhverfisstofnunar um veiðistjórnun á rjúpu sem byggja á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins í ár. Fyrirkomulag veiðanna nú er það sama og í fyrra, sem þá var ákveðið til þriggja ára.
Veiðistofn rjúpu er nú einn sá minnsti síðan mælingar hófust árið 1995 og aðeins einu sinni áður, 2002, hefur veiðistofninn verið metinn viðlíka lítill. Því er mjög mikilvægt að veiðimenn gæti hófsemi í veiðum. Veiðiþol stofnsins er metið um 25.000 rjúpur, sem er um 35% af metnu veiðiþoli í fyrra.
Stefna stjórnvalda er að nýting rjúpnastofnsins, líkt og annarra auðlinda, skuli vera sjálfbær. Jafnframt skuli rjúpnaveiðimenn stunda hóflega veiði til eigin neyslu. Til að vinna að sjálfbærri veiðistjórnun eru stundaðar mikilvægar rannsóknir og vöktun á stofninum og fyrir hendi stjórnkerfi til að stýra veiðinni að viðmiðum um hvað telst sjálfbær nýting.
Sölubann er á rjúpum en í því felst að óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir. Umhverfisstofnun er falið að fylgja sölubanninu eftir.
Veiðimenn eru eindregið hvattir til að sýna hófsemi og eru sérstaklega beðnir um að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar. Umhverfisstofnun hvetur til hófsemi í veiðum sem eiga að miða við veiði til eigin neyslu.
Verndarsvæði verður á SV-landi líkt og undanfarin ár. Veiðimönnum er bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.
Mat Náttúrufræðistofnunnar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins 2020
Tillögur Umhverfisstofnunnar um veiðistjórnun á rjúpu 2020

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Lögregla kölluð út til að stöðva kynlíf

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Þóttust vera eftirlitsmenn MAST

    24 deilingar
    Deila 24 Tweet 0
  • Skotárás á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins

    82 deilingar
    Deila 82 Tweet 0
  • Féll ofan í Kleifarvatn

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Eigandinn vill ekki selja Íslandsbanka

    41 deilingar
    Deila 41 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?