• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Ráðherra skipar í embætti þriggja skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
17. október, 2020
0 0

Frá vinstri: Ása Þórhildur Þórðardóttir, Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir og Kolbeinn Árnason

Nýtt skipurit atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins tók gildi í þessum mánuði en með breytingunum urðu til þrjár nýjar fagskrifstofur í stað tveggja áður. Um er að ræða skrifstofu landbúnaðarmála, skrifstofu matvælaöryggis og fiskeldis og skrifstofu sjávarútvegsmála. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað skrifstofustjóra fyrir hinar nýju fagskrifstofur. Það eru þau Ása Þórhildur Þórðardóttir, skrifstofustjóri landbúnaðarmála, Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, skrifstofustjóri sjávarútvegsmála og Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri matvælaöryggis- og fiskeldis. Þau taka öll til starfa á næstunni.
Embættin voru auglýst laus til umsóknar þann 18. júlí sl.  en alls bárust 93 umsóknir. Ráðgjafandi hæfnisnefnd mat 10 umsækjendur mjög vel hæfa

Ása Þórhildur Þórðardóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra landbúnaðarmála
Hún er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Ása Þórhildur hefur starfað innan Stjórnarráðsins frá árinu 2011 þegar hún hóf störf í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Hún starfaði í velferðarráðuneytinu á árunum 2014-2018 en kom til starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu á árinu 2018. Frá 2019 hefur Ása Þórhildur verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu matvæla og landbúnaðar.
Alls bárust 27 umsóknir um starfið. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Ásu Þórhildi mjög vel hæfa til að gegna embættinu.
Kolbeinn Árnason hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra matvælaöryggis- og fiskeldis
Hann er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Á árum áður gegndi Kolbeinn starfi skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands við Evrópusambandið í Brussel, skrifstofustjóri á skrifstofu fiskveiðistjórnunar í sjávarútvegsráðuneytinu, yfirlögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðideildar skilanefndar og slitastjórnar Kaupþings og framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Síðustu ár hefur Kolbeinn starfað sem lögmaður.
Alls bárust 34 umsóknir um starfið. Ráðgefandi hæfnisnefnd Kolbein mjög vel hæfan til að gegna embættinu.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra sjávarútvegsmála.
Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í sjávarútvegsfræði frá sama skóla. Hún hefur lokið diplómanámi í hafrétti frá Rhodes Academy. Áslaug Eir hefur starfað hjá Fiskistofu frá árinu 2007. Frá árinu 2010 til 2013 starfaði Áslaug Eir sem deildarstjóri hjá stofnuninni og frá 2014 hefur hún gegnt stöðu sviðsstjóra veiðieftirlits- og lögfræðisviðs og verið staðgengill fiskistofustjóra.
Alls bárust 32 umsóknir um starfið. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Áslaugu Eir mjög vel hæfa til að gegna embættinu.

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Lögregla kölluð út til að stöðva kynlíf

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Þóttust vera eftirlitsmenn MAST

    24 deilingar
    Deila 24 Tweet 0
  • Skotárás á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins

    82 deilingar
    Deila 82 Tweet 0
  • Féll ofan í Kleifarvatn

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Eigandinn vill ekki selja Íslandsbanka

    41 deilingar
    Deila 41 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Lífsstíll

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?