• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Vörukarfan hækkaði í 6 af 8 verslunum á 6 mánaða tímabili

Mest hækkaði vörukarfan í Heimkaup, 3,4% en minnst í Krambúðinni og Kjörbúðinni, 0,5%

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. október 2021
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0
Á 6 mánaða tímabili, frá lokum mars 2021 fram í byrjun október, hækkaði vörukarfa ASÍ í sex matvöruverslunum af átta. Vörukarfa ASÍ endurspeglar almenn matarinnkaup meðalheimilis. Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna.

Mest hækkaði vörukarfan í Heimkaup, 3,4% en minnst í Krambúðinni og Kjörbúðinni, 0,5% í hvorri verslun fyrir sig. Vörukarfan lækkaði í einni verslun, Hagkaup um 0,6% og stóð í stað í einni verslun, Nettó. Vöruflokkurinn mjólkurvara, ostar og egg hækkaði nokkuð mikið í öllum verslunum eða á bilinu 3,1-8,4%. Verð á kjötvöru hækkaði einnig töluvert í meirihluta verslana. Verð á grænmeti og ávöxtum lækkaði í mörgum verslunum og eins verð á sykri, súkkulaði og annarri matvöru.

Vörukarfan hækkaði mest í Heimkaup
Þegar litið er til lágvöruverðsverslana má sjá að vörukarfan hækkaði minnst í Krónunni, 0,8% en mest í Bónus, 1,8% á meðan hún stóð í stað í Nettó. Vörukarfan hækkaði mest í Heimkaup á tímabilinu, 3,4%. Verð hækkaði í öllum vöruflokkum í Heimkaup nema einum en það er flokkurinn „önnur matvara“ sem lækkaði um 0,6%. Sá flokkur samanstendur af fiski, fitu og olíum, dósamat og þurrvöru. Mest hækkaði verð á grænmeti og ávöxtum í Heimkaup, 6,1% en verð á drykkjarvöru, kjötvöru og brauð- og kornvöru hækkaði á bilinu 4-5% í versluninni.

Verð hækkaði einnig í öllum vöruflokkum nema einum í Bónus en þar er það flokkur grænmetis og ávaxta sem lækkaði í verði á tímabilinu um 4,8%. Verð á hreinlætis- og snyrtivöru hækkaði einungis um 0,2%. Mest hækkaði verð á mjólkurvöru í Bónus, 6,1% og næst á eftir verð á kjötvöru, 4,9%. Vörukarfan lækkaði mest í Hagkaup, 0,6% en þar lækkaði verð í fimm vöruflokkum en hækkaði í þremur. Mest lækkaði verð á grænmeti og ávöxtum, 3,9% og verð á drykkjarvöru um 3,8%. Mest hækkaði verð á mjólkurvöru í Hagkaup, 3,4% og næst mest hækkaði verð á annarri matvöru, 2,1%.

Verð á mjólkurvöru og kjöti hækkar mest
Verð á mjólkurvörum, ostum og eggjum hækkaði nokkuð mikið á tímabilinu og í öllum verslunum. Mest hækkaði vöruflokkurinn í Iceland, 8,4% en minnst í Kjörbúðinni, 3,1%. Næst mest hækkaði vöruflokkurinn í Krónunni, 7,2% en þar á eftir kemur Bónus með 6,1% hækkun. Þess má geta að verðlagsnefnd búvara tók ákvörðun fyrr á árinu um hækkun á lágmarksverði mjólkur til bænda um 3,77% og tók hækkunin gildi þann 1. apríl 2021.

Kjötvara hækkaði í verði í sex verslunum af átta og voru verðhækkanirnar á bilinu 1-5%. Mest hækkaði verð á kjötvöru í Kjörbúðinni, 5% og næst mest í Bónus, 4,9%. Mest lækkaði verð á kjötvöru í Krónunni, 3,2% og næst mest í Krambúðinni, 2,4%. Auk grænmetis og ávaxta er kjötvara vöruflokkur sem getur sveiflast töluvert í verði.

Grænmeti og ávextir og sykraðar vörur lækka oftast í verði
Sá vöruflokkur sem lækkaði mest í verði er grænmeti og ávextir. Mest lækkaði verð í vöruflokknum í Bónus, 4,8% og næst mest í Nettó, 4,7%. Vöruflokkurinn hækkaði mest í Heimkaup, 6,1%. Verð á sykruðum vörum lækkaði í 5 verslunum af 8, mest í Nettó, 4,4% en mesta verðhækkunin í þessum vöruflokki var í Heimkaup, 2,7%.

Um könnunina
Verðkannanir á vörukörfunni voru gerðar 20.-30. mars 2021 og 25. september – 3. október 2021.
Verðlagseftirlit ASÍ mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, og safa. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaup, Kjörbúðinni, Iceland, Heimkaup og Krambúðinni.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Umræða
Share19Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?