SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN er sýnd nú um mundir og var frumsýnd á föstudaginn. Myndin er 112 mínútur að lengd og aldurstakmark er níu ára.
Leikstjóri myndarinnar er Elfar Aðalsteins og aðalleikarar eru: Ólafur Darri Ólafsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Siggi Ingvarsson, Heiða Reed. Elfar skrifaði handritið sjálfur upp úr skáldsögu Jóns Kalmans og gerði myndina í nánu samstarfi við rithöfundinn
,,Ef þú leggur við hlustir þá segir Þorpið þér kannski nokkrar ósagðar sögur. Sögur af forstjóranum unga sem dreymir á latínu og fórnar fjölskyldu og glæstum frama fyrir gamlar bækur og stjörnukíki, heljarmenni sem kiknar undan myrkrinu, fínvöxnum syni hans sem tálgar mófugla.
Af bóndanum með bassaröddina sem strengir fallegar girðingar en ræður illa við fýsnir holdsins, einmana gröfukalli sem skellir sér í helgarferð til London og gömlum Dodge 55.“ Segir í kynningu myndarinnar sem er byggð á samnefndri bók Jóns Kalmans Stefánssonar.
,,Við ætlum ekki að segja frá öllu þorpinu, förum ekki hús úr húsi, en hér verður þó örugglega sagt frá girndinni sem hnýtir saman daga og nætur, frá einmana bónda og fjögur þúsund ára gamalli múmíu. Við segjum frá hversdagslegum atburðum, en líka þeim sem eru ofvaxnir skilningi okkar; menn hverfa, draumar breyta lífi.
Og að sjálfsögðu ætlum við að segja þér frá nóttinni sem hangir yfir okkur, frá dögunum sem koma og fara, frá fuglasöng og síðasta andartakinu – þetta verða áreiðanlega margar sögur.“ Segir í kynningu á bókinni en eftir Jón Kalman liggja margar frábærar bækur og er þessi engin undantekning.
Jón Kalman Stefánsson hefur á undanförnum árum skapað persónulegan og seiðandi sagnaheim í röð tengdra skáldsagna og smásagna. Tvö þessara verka, Sumarið bakvið brekkuna og Ýmislegt um risafurur og tímann, voru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma.
Jón Kalman heldur hér áfram að víkka sagnaheim sinn, nú með þessu óvenjulega safni tengdra sagna og brota. Sögusviðið er smáþorp á Vesturlandi þar sem hver íbúinn á fætur öðrum reikar ráðþrota um villugjörn öngstræti hjartans.
Blaðamaður Fréttatímans hefur séð myndina og mælir með henni við áhorfendur, myndin er vel leikin og myndatakan er góð, myndir úr náttúru landsins sem og í ,,þorpinu“ Þingeyri sem er aðal sögusviðið. Söguþráðurinn er margslunginn og vel þess virði að sjá myndina sem er alls ekki með fyrirsjáanlegan endi. Það var mikil ánægja með myndina á meðal gesta, en frumsýningin var þann 14. oktober s.l.
Discussion about this post