• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 24. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósent

Verðbólga jókst í október og mældist 4,5%

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. nóvember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2%
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í nóvemberhefti Peningamála eru horfur á um 4% hagvexti í ár sem er svipað því sem spáð var í ágúst. Betri horfur um útflutning gera það hins vegar að verkum að hagvaxtarhorfur fyrir næsta ár hafa batnað nokkuð og er talið að hagvöxtur verði liðlega 5%. Óvissa er hins vegar enn mikil og þróun efnahagsmála mun sem fyrr markast af framvindu farsóttarinnar.

Verðbólga jókst í október og mældist 4,5%. Framlag innlends kostnaðarþrýstings, hækkunar húsnæðisverðs og launa hefur skýrt stóran hluta verðbólgunnar undanfarið en áhrif hækkana alþjóðlegs olíu- og hrávöruverðs hafa einnig aukist. Undirliggjandi verðbólga er hins vegar minni og hefur hjaðnað undanfarna mánuði.

Verðbólguhorfur hafa versnað nokkuð frá því í ágúst sem m.a. má rekja til þrálátari alþjóðlegra verðhækkana, hraðari viðsnúnings í innlendum efnahagsumsvifum og hækkunar launakostnaðar. Horfur eru á að verðbólga aukist áfram á næstu mánuðum en taki síðan að hjaðna enda haldist kjölfesta verðbólguvæntinga við markmið.

Peningastefnunefnd ítrekar að hún mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma.

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 3,75%
2. Lán gegn veði til 7 daga 2,75%
3. Innlán bundin í 7 daga 2,00%
4. Viðskiptareikningar 1,75%

Sjá hér: Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands, 17. nóvember 2021

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir eru látnir eftir bruna í fjölbýlishúsi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Lögreglan leitar manns

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    158 deilingar
    Share 63 Tweet 40
  • Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?