• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 23. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Svavar Gestsson er látinn

ritstjorn by ritstjorn
18. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður er látinn 76 ára að aldri. Hann lést aðfaranótt mánudagsins 18. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans. Svavar fæddist á Guðnabakka í Stafholtstungum 26. júní og voru foreldrar hans, Gestur Zóphónías Sveinsson og Guðrún Valdimarsdóttir. Svavar eignaðist þrjú börn í fyrra hjónabandi.

Svavar útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1964, innritaðist í lögfræði við Háskóla Íslands sama ár og var við nám í Berlín á árunum 1967-1968. Hann var alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið frá 1978 til 1999, viðskiptaráðherra frá 1978-1979, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra frá 1980 til 1983 og menntamálaráðherra frá 1988 til 1991. Þá var hann formaður Alþýðubandalagsins frá 1980 til 1987 og formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra frá 1995 til 1999.

Svavar var sendiherra Íslands í Svíþjóð frá 2001 til 2006, sendiherra Íslands í Danmörku frá 2006-2010 og sendiherra Íslands gagnvart Afríkusambandinu árið 2008. Eftirlifandi eiginkona Svavars er Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Börn Svavars og fyrri eiginkonu hans Jónínu Benediktsdóttur eru Svandís, Benedikt, Gestur og börn Guðrúnar eru Ragnheiður, Árni og Gunnhildur.

 

Discussion about this post

  • Bubbi er ósáttur

    Bubbi er ósáttur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tugmilljóna króna okurlán á Íslandi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Greiða hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Reyndist ekki vera leiðindaskarfur

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?