Lilja Alfreðsdóttir, menningar- viðskiptaráðherra, heimsótti Hæfnisetur ferðaþjónustunnar í síðustu viku og fundaði með starfsfólki og stýrihóp setursins.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar var stofnað árið 2017 og er hlutverk þess að efla hæfni og gæði í íslenskri ferðaþjónustu sem og starfsánægju og fagmennsku starfsfólks í atvinnugreininni.
Ráðherra fékk þar kynningu á verkefnum og verkfærum setursins, sem hefur framkvæmt greiningu á framboði og þörfum atvinnugreinarinnar fyrir nám sem tengist ferðaþjónustu. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur lagt til að þróað verði þrepaskipt starfsnám í greininni í samráði og samvinnu við hagsmunaaðila.
„Hæfnisetur ferðaþjónustunnar veitir fyrirtækjum í ferðaþjónustu og starfsfólki þeirra þjónustu og ráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Starf hæfnisetursins í þróun fræðslu- og stuðningsefnis hefur aukið menntun og fagmennsku í atvinnugreininni og stuðlað að jákvæðari ímynd ferðaþjónustu á Íslandi. Ljóst er að Hæfnisetur ferðaþjónustunnar mun áfram spila stórt hlutverk í því verkefni að auka gæði þessarar sístækkandi og mikilvægu atvinnugreinar á Íslandi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.