Tveir karlar á þrítugsaldri voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 25. febrúar.
Það er gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Grafarholti í síðustu viku.
Rannsókn málsins miðar vel.
Umræða