2.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Reglugerð um leigubifreiðaakstur kynnt í samráðsgátt

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Drög að reglugerð um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.

Ný lög um leigubifreiðaakstur (nr. 120/2022), sem Alþingi samþykkti í desember, taka gildi 1. apríl nk. Í lögunum er ráðherra falið að mæla nánar fyrir um ýmis atriði sem tengjast starfsemi leigubifreiða. Í drögum að reglugerð er meðal annars að finna ákvæði er varða:
  • Auðkenni leigubifreiðar, sýnileika verðskrár og innihald hennar.
  • Umsókn og útgáfu leyfis, námskeið og heimilar undanþágur frá gerðum kröfum.
  • Sérstakar skyldur leigubifreiðastöðvar og rafræn kerfi.
Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 22. mars 2023.