• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fáðu greitt fyrir að flokka hjá Pure North

Kópavogur og Reykjanesbær gera samning við endurvinnslufyrirtækið Pure North

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. maí 2022
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0
Kópavogur og Reykjanesbær hafa samþykkt að ganga til samninga við endurvinnslufyrirtækið Pure North  um  uppsetningu  grenndarstöðva  í  sveitarfélögunum  tveimur  þar  sem  tekið verður á móti endurvinnsluefnum frá heimilum.  Um er að ræða þriggja ára tilraunaverkefni sem  hefur  hlotið  nafnið  „Fáðu  greitt  fyrir  að  flokka.“  Gert  er  ráð  fyrir að allt að fimm móttökustöðvar verði reistar í september hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum og fleiri fylgi í kjölfarið en samningaviðræður standa yfir við fleiri sveitarfélög og fyrirtæki.

Að sögn Sigurðar Halldórssonar, forstjóra Pure North eru grenndarstöðvarnar umbylting á núverandi úrgangsstjórnunarkerfi en íbúar munu fá greitt fyrir að flokka sín endurvinnsluefni og skila þeim í grenndarstöðvar Pure North. Slíkur hvati hefur gefist vel við skil á drykkjarumbúðum um árabil og dæmi erlendis sanna að fjárhagsleg hvatakerfi virka best til að  fá  íbúa  til  að  skila  efnum  í endurvinnslu, bæta árangur í flokkun og auka hreinleika endurvinnsluefna.  Flokkunarleiðbeiningar,  greiðsla  og  önnur  upplýsingagjöf  fer  fram  í gegnum smáforrit sem Pure North er að þróa.

Endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs á Íslandi er með því lægsta í Evrópu eða um 27% miðað við árið 2019. Átaks er þörf ef Íslandi á að takast að standa við alþjóðlegar skuldbindingar á allra næstu árum en ný markmið um endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs munu hækka úr

50% í 65% á næstu 13 árum. Að sögn Sigurðar skapar úrgangsstjórnunarkerfi Pure North einstakt tækifæri til að hækka endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs hratt með því að höfða til ábyrgðar einstaklinga að flokka og skila úrgangi til endurvinnslu og fá greitt fyrir. Með kerfinu myndast einnig hringrás endurvinnsluefna og í fyrsta sinn á Íslandi gefst tækifæri til að rekja efni frá því að þau eru búin til og þar til þau eru komin aftur í notkun sem endurnýtt efni.

Íbúar geta fylgst með sínum árangri í flokkun og skilum í gegnum smáforrit og sveitarfélög fá bætt aðgengi að upplýsingum um uppruna, magn og gæði efna sem skila sér í endurvinnslu. Þetta mun mynda aðgengi að gögnum sem geta skilað sér í betri ákvarðanatöku til að minnka umhverfisáhrif og kostnað við úrgangsmeðhöndlun.

Pure  North  er  endurvinnslu- og ráðgjafarfyrirtæki. Fyrirtækið endurvinnur megnið af því heyrúlluplasti sem tilfellur á Íslandi ásamt öðrum plastefnum og stefnir á endurvinnslu 2.500 tonna á árinu 2022. Það magn gæti orðið um helmingur alls þess plasts sem er endurunnið frá Íslandi í dag. Endurvinnslutækni fyrirtækisins nýtir jarðgufu í ferlið og sýnt hefur verið fram á með vistferilsgreiningu og útgáfu umhverfisyfirlýsingar að ferli Pure North skilar um

82%  lægra  kolefnisspori  á  hvert unnið tonn samanborið við sambærilega endurvinnslu í Evrópu.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvennaathvarf fær 30.000.000 kr. en karlaathvarf 3.500.000 kr.

    Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Flogið með lækningarvörur til Bretlands

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Eldsneyti hjá Costco hefur lækkað um hundrað krónur

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Borgarísjakar 55 mílur frá landi

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?