• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 3. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Að vernda þá sem minnst hafa!

ritstjorn by ritstjorn
18. júní 2019
in Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Vinnið gegn fátækt, en nærið hana ekki

 
Frá Þuríði Hörpu, formanni ÖBÍ: Brýning til alþingismanna – að vernda þá sem minnst hafa!
Í gær 17. júní hélt forsætisráðherra ræðu sem ætluð er til að auka okkur sem landið búum kjark, getu og þor. Þar benti hún á að mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og flýja ekki af hólmi, hrekjast ekki úr vondum næturstað í enn verri eins og Bjartur í Sumarhúsum gerði. Hún sagði ennfremur að stjórnmálaákvarðanir getu breytt lífi fjöldans.
Við þau orð vil ég staldra nú þegar fjármálaáætlun er í endurskoðun.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna

Ég hef áhyggjur af endurskoðun fjármálaáætlunar, áhyggjur af því að sá hópur sem lengst hefur beðið eftir leiðréttingu í okkar ágæta samfélagi verði enn hafður úti í kuldanum, enn skilinn eftir.
Ég hef áhyggjur af því að hópurinn, sem hefur að geyma öryrkja og fatlað fólk, hrekist, eins og Bjartur í Sumarhúsum, úr vondum næturstað í verri ef svo fer fram sem horfir.
Í endurskoðun er að draga úr útgjöldum þjóðarbúsins næstu ár, þar þykir stjórnvöldum, að því er virðist, ákjósanlegast að draga úr framlögum allt að 8 milljarða sem áætlaðir voru í málaflokk örorku og fatlaðs fólks.
Málaflokk sem í fyrri fjármálaáætlun var sveltur, þar sem ekki voru settir inn nægjanlegir fjármunir til að taka út skerðingar eða hækka örorkulífeyrir.
Við höfum beðið eftir réttlæti lengur en aðrir hópar og höfum ekki fengið leiðréttingu á kjörum, því miður. Í stað þess að króna á móti krónu væri afnumin fengum við 35 aura afslátt á skerðingunni. Enn er það svo að öryrkjum og fötluðu fólki er gert að kaupa sig inn á atvinnumarkaðinn. Örorkulífeyrir er í dag 247þús kr. atvinnuleysisbætur eru hærri eða um 280þús kr. og lágmarkslaun 317þús. kr. Það er eitthvað verulega skakkt við þetta.
Í fyrsta skipti hefur það gerst að atvinnuleysisbætur eru hærri en örorkulífeyrir. Ég biðla til alþingismanna að finna aðrar leiðir til að spara í ríkisbúskapnum en þá að draga úr fjármagni til örorkulífeyrisþega.
Vinnið gegn fátækt, en nærið hana ekki. Gangi ykkur vel!

  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • SÉRA KARL FÉLL Í SJÓINN: „HANN BJARGAÐI LÍFI MÍNU“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?