• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Föstudagur, 9. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Skattaupplýsingar

Hlutfall þeirra sem eru ekki fylgjandi að birta skattaupplýsingar er hæst meðal þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn, næstlægst sem kysu Framsóknarflokkinn

ritstjorn by ritstjorn
18. júní 2021
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
0
Share on FacebookShare on Twitter
Í ágúst næstkomandi geta landsmenn aftur nálgast upplýsingar í álagningarskrá á skrifstofu Skattsins (áður Ríkisskattstjóra), um hvað aðrir greiddu í skatt á liðnu ári. Ríflega helmingur er fylgjandi því að landsmenn geti nálgast upplýsingar um hvað aðrir greiða í skatt, eða rúmlega 52%. Rösklega fimmtungur er aftur á móti andvígur því, eða nær 22%. Ríflega fjórðungur segist loks hvorki fylgjandi né andvígur því, eða tæp 26%.

Karlar eru frekar fylgjandi því en konur að landsmenn geti nálgast upplýsingar um hvað aðrir greiða í skatt. Munur kemur fram eftir því hvað fólk kysi ef kosið yrði til Alþingis nú. Hlutfall þeirra sem eru fylgjandi því er lægst meðal þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn, næstlægst meðal þeirra sem kysu Framsóknarflokkinn en þar á eftir koma þau sem kysu Viðreisn, Vinstri græn eða Miðflokkinn. Það er svo hærra meðal þeirra sem kysu Samfylkinguna, enn hærra meðal þeirra sem kysu Pírata en hæst meðal þeirra sem kysu aðra flokka.

Spurt var:
Ert þú fylgjandi eða andvíg(ur) því að landsmenn geti nálgast upplýsingar um hvað aðrir greiða í skatt?
Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 3.-14. júní 2021.
Þátttökuhlutfall var 55,2%, úrtaksstærð 1.668 einstaklingar 18 ára eða eldri af öllu landinu valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Gallup.

Discussion about this post

  • Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    Laxeldisstöð sektuð um 21,6 milljón fyrir dýraníð

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Tálmunarofbeldi mæðra

    209 shares
    Share 209 Tweet 0
  • Dæmd fyrir að saka mann um nauðgun

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er alger klikkun – 500.000 krónur fyrir venjulegt fólk á ári“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?