Sorglegt en fyrirsjáanlegt
Samkvæmt mínum heimildum hefur verið tilkynnt um uppsagnir 26 starfsmanna á hjúkrunarheimilunum á Akureyri. Þar á meðal eru lykil starfsmenn.
Í mörg ár hefur ríkisvaldið vanfjármagnað málaflokkinn með þeim afleiðingum að Akureyrarbær neyddist til að segja upp samningi um rekstur heimilinna, enda erfitt að réttlæta að greiða tap ár eftir ár með peningum sem áttu að fara í önnur mikilvæg og jafnvel lögbundin verkefni.
Í stað þess að ríkið tæki við rekstrinum eins og tíðkast víða um land, ákvað heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnin að bjóða hann út og einkahlutafélag tók við honum fyrir nokkrum vikum. Og nú er sem sagt hagræðingin hafin.
Því miður er hætt við að þetta sé bara fyrsta skrefið og þau næstu verði heldur ekki í þágu alls þess gamla fólks sem á skilið að lifa síðustu árin við öryggi, góðan aðbúnað og eins góð lífsgæði og frekast er unnt. Þau eiga það inni hjá okkur sem yngri erum.
Og svona er nú komið fyrir stærsta kvennavinnustaðnum á Akureyri.