Ný Vestmannaey VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum og var vel tekið á móti skipinu að sögn Eyjafrétta.
Birgi Þór Sverrisson skipstjóri er ánægður með nýja skipið „Mér líst afskaplega vel á þetta skip. Það er glæsilegt í alla staði og með miklum og góðum búnaði. Þegar skipið er borið saman við gömlu Vestmannaey blasir við fullkomnari aðstaða að flestu leyti.
Má þar til dæmis nefna vinnuumhverfið á millidekki og í brúnni en þar er um mikla breytingu að ræða. Þá má nefna að í skipinu eru tvær vélar og tvær skrúfur og ég tel fullvíst að það hafi í för með sér meiri togkraft. Skipið er einkar hljóðlátt. Það heyrist lítið í vélunum og öll spil eru knúin rafmagni.
Þá er þetta skip sérstaklega mjúkt og fer vel með mannskapinn. Við fengum kaldaskít á leiðinni til landsins og upplifðum þá hvernig það fer í sjó. Það er svo sannarlega tilhlökkunarefni að fara að fiska á þetta skip en það mun ekki gerast fyrr en um mánaðamótin ágúst-september. Það á eftir að ganga frá búnaði á millidekkinu en sú vinna verður hafin í Vestmannaeyjum og síðan verður dekkið klárað í Slippnum á Akureyri“, segir Birgir Þór. Síldarvinnslan greindi frá.
Óskar Pétur tók myndir af skipinu sigla í heimahöfn
Upplýsingar um nýja Vestmannaey:
Lengd 28,9 m
Breidd 12 m
Brúttótonn 611
Nettótonn 183,4
Klassi DNVGL+1A1
Aðalvél 2x Yanmar 6EY17W 294 kw
Hjálparvél Nogva Scania DI13 HCM534CDE-1 1800/mín
Gír 2x Finnoy, hvor með sinn rafal. Skrúfáshraði 205/mín
Skrúfa 2x Finnoy, 2 m í þvermál. Silent fishing.
Hliðarskrúfa frá Brunvoll
Allar vindur rafdrifnar frá SeaOnics
Togvindur knúnar PM sísegulmótor
Löndunarkrani frá Aukra Marine
Autotroll frá Scantrawl
Skilvindur frá Westfalia
-tvær smurolíuskilvindur
-ein eldsneytisskilvinda
-ein austursskilvinda
Rafkerfi 440 volt 60 rið tvískipt, sb,bb
Flest tæki í brú frá Furuno
3D mælir frá Wasp
Skjákerfi og stjórnbúnaðarkerfi frá SeaQ
Rafkerfi frá Vard Electro
Björgunarbúnaður frá Viking