Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland með komu flugsveitar bandaríska flughersins
Rúmlega 100 liðsmenn bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins eftir helgina með fjórar F-15 orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Með fyrirvara um veður, er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 7. til 14. júlí. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl bandarísku flugsveitarinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við embætti landlæknis og aðra er að sóttvörnum koma hér á landi.
Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok júlí.