Ari Trausti Guðmundsson brotlegur við lög sem formaður Þingvallanefndar
,,Menn sjá oftast betur flísina í auga náungans en bjálkann í sínu eigin.“
Netheimar hafa logað vegna ummæla Ara Trausta Guðmundssonar um kosningu í umhverfis- og samgöngunefnd í dag. Þar ber flestum saman um að Ari Trausti Guðmundsson sé ekki samkvæmur sjálfum sér frekar en í kosningunni um Orkupakka 3. sem fulltrúi síns græna og vinstri flokks, Vinstri grænna.
Komið hefur fram að Orkupakki 3 muni stórskaða íslenska garðyrkju, landbúnað, iðnað og heimili og allt atvinnulíf á Íslandi, þegar að fyrirhugaður Sæstrengur hefur verið lagður. Dr. Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi alþingismaður er ein þeirra sem ofbýður hræsni Ara Trausta Guðmundssonar. Hún lætur þung orð falla um Ara Trausta:
,,Ari Trausti Guðmundsson segir í viðtali óhæft að maður sem brotið hefur siðareglur Alþingis að mati siðanefndar þingsins gegni formennsku í nefnd.
Ekki skal ég mótmæla því. Sjálfur gerðist Ari Trausti Guðmunsson brotlegur við lög (ekki bara reglur) sem formaður Þingvallanefndar, samkvæmt úrskurði kærunefndar jafnréttismála, þegar hann réði þjóðgarðsvörð á Þingvöllum.
Ari Trausti ennþá formaður Þingvallanefndar
Ari Trausti situr enn sem formaður Þingvallanefndar og virðist ekki ætla að segja af sér formennskunni. Ekki er mikil sjálfssamkvæmni þar – enda löngu vitað að menn sjá oftast betur flísina í auga náungans en bjálkann í sínu eigin.“ Segir Dr. Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi alþingismaður.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/09/08/edi-truell-med-400-milljarda-krona-i-saestreng-fra-islandi-til-bretlands/