• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland veitir fjárstuðning til uppbyggingar sjálfbærra fiskveiða í þróunarríkjum

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, ásamt Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastýru Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar

Ísland veitir fjárstuðning til uppbyggingar sjálfbærra fiskveiða í þróunarríkjum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. september 2023
in Erlent, Fréttir
A A
0

Íslensk stjórnvöld hafa undirritað samning við Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) um fjárstuðning til þróunarríkja við að koma á fót sjálfbærri fiskveiðistjórnun. Stuðningurinn nemur 500 þúsund svissneskum frönkum, en Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands í Genf, við sérstakt tilefni ásamt Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastýru Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Þá átti ráðuneytisstjóri sömuleiðis fund með aðstoðarframkvæmdastýru WTO í tengslum við samningaviðræður um ríkisstyrki í sjávarútvegi, sem Einar Gunnarsson fastafulltrúi Íslands í Genf, stýrir.

Haustlota mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafin

Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók þátt í 54. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sem hófst í Genf í vikunni. Hann ávarpaði mannréttindaráðið tvívegis fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Þá flutti fastafulltrúi Íslands jafnframt sameiginlegt ávarp Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um stöðu mannréttinda í Afganistan og Súdan.

Ísland á mikið og gott samstarf við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin á vettvangi mannréttindaráðsins og í þessari fundarlotu verða flutt um þrjátíu ávörp í nafni ríkjanna átta. Þá flytur Ísland einnig nokkur ávörp eitt og sér. Ávörpin má lesa á vefsíðu fastanefndar Íslands í Genf.

Í yfirstandandi lotu á Ísland aðild að nýrri ályktun sem fjallar um ólaunaða og launaða umönnunarvinnu sem,  falla oftar en ekki í hlut kvenna og er því mikilvægt jafnréttismál. Auk Íslands eiga Argentína, Mexíkó og Spánn aðild að kjarnahópnum.

Ráðuneytisstjóri fundaði jafnframt með Nada Al-Nashif aðstoðarmannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, þar sem meðal annars 75 ára afmæli mannréttindayfirlýsingarinnar, bakslag í jafnréttismálum, málefni hinsegin fólks og mannréttindamál í Afganistan og Íran voru til umræðu. Þá átti ráðuneytisstjóri fund með hópi fastafulltrúa í Genf þar sem framboð Íslands til mannréttindaráðsins og staða og horfur í mannréttindamálum heimsins voru í brennidepli.

Mannréttindaráðið fundar þrisvar á ári, fjórar til sex vikur í senn. Þess utan kemur það saman til að ræða einstök og brýn mannréttindamál. Ísland átti sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um átján mánaða skeið á árabilinu 2018-2019 og sækist nú eftir kjöri í ráðið í heilt kjörtímabil árin 2025-2027. Kosningar fara fram á vettvangi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna haustið 2024.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?