• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. desember 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 8. – 14. desember, en alls var tilkynnt um 42 umferðaróhöpp í umdæminu.
Sunnudaginn 8. desember kl. 7.47 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Stekkjarbakka og Stekkjarbakka. Annarri bifreiðinni var ekið suður Stekkjarbakka og hinni austur Stekkjarbakka, en grunur er um að annar ökumaðurinn hafið ekið gegn rauðu ljósi. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Frá vettvangi á gatnamótum Vatnagarða og Sægarða

Fimm umferðarslys voru tilkynnt mánudaginn 9. desember. Kl. 11.29 missti ökumaður á leið vestur Vesturlandsveg stjórn á bifreið sinni, rétt við Suðurlandsveg (brú), með þeim afleiðingum að hún snerist á veginum og lenti á annarri bifreið, sem var ekið í sömu hátt. Snjókrapi og hálka var á vettvangi. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.
Kl. 13.02 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Vatnagarða og Sægarða. Annarri bifreiðinni var ekið norður Sægarða, en hinni austur Vatnagarða og þar er stöðvunarskylda. Ökumaðurinn sem ók Vatnagarða er jafnframt grunaður um að hafa verið að tala í farsíma í aðdraganda slyssins.
Síðastnefndi ökumaðurinn og farþegi úr bifreið hans voru fluttir á slysadeild. Kl. 13.33 var bifreið ekið austur Bríetartún og á kyrrstæða, mannalausa bifreið á móts við Þórunnartún. Í aðdragandanum hafði gangandi vegfarandi farið út á götuna og reyndi ökumaðurinn að afstýra slysi með fyrrgreindum afleiðingum. Farþegi í bílnum var fluttur á slysadeild. Kl. 16.02 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Listabrautar og Kringlunnar.
Annarri bifreiðinni var ekið vestur Listabraut, en hinni suður Kringluna. Grunur er um að annar ökumaðurinn hafi ekið gegn rauðu ljósi. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild. Og kl. 17.12 varð tveggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú. Báðum bifreiðunum var ekið í austur, en áreksturinn varð þegar ökumaður annarrar þeirra hugðist skipta um akrein. Farþegi úr annarri bifreiðinni var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vistaður í fangaklefa eftir umferðaróhapp

    Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    135 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?