• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 6. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Creditinfo sektað um 38 milljónir vegna rangra skráninga

Creditinfo

Creditinfo: Nýskráningum vanskila fjölgar

Árangurslausum fjárnámum fóru að aukast á ný árið 2022 - Gjaldþrot fyrirtækja aukast hratt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. desember 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Nýskráningum fyrirtækja og einstaklinga á vanskilaskrá hefur farið fjölgandi frá því í september á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Creditinfo á vanskilum fyrirtækja og einstaklinga á Íslandi.

Í greiningunni kemur fram að hlutfall fyrirtækja sem hafa komið ný inn á vanskilaskrá á 12 mánaða tímabili stóð í 3,8% í mars á þessu ári. Á síðastliðnum fimm árum fór hlutfallið hæst í 5,7% árið 2019 en hafði farið stiglækkandi frá þeim tíma til september árið 2022 þegar það stóð í 2%. Myndin hér fyrir neðan sýnir þróunina frá ársbyrjun 2019 til mars 2023.

Í eldri greiningu Creditinfo á þróun vanskila kom fram að greiðslufrestir frá lánastofnunum og fyrirtækjum í kjölfar COVID-19 faraldursins hafi átt stóran þátt í minnkandi hlutfalli nýskráninga fyrirtækja á vanskilaskrá síðastliðin ár. Greinilegt er að breyting hafi orðið á þeirri þróun frá og með september árið 2022 og næstu mánuði þar á eftir.

Gjaldþrot fyrirtækja aukast hratt

Þegar litið er til fjölda gjaldþrota og árangurslausra fjárnáma fyrirtækja á Íslandi ár má sjá að gjaldþrotum fór fækkandi frá árinu 2021 til ársins 2022. Um 320 gjaldþrot voru skráð 2022 í samanburði við 800 til 1.000 gjaldþrot árin 2018 til 2021.

Svo virðist sem að þessi þróun sé að snúast hratt við. Það sem af er 2023 hafa 458 gjaldþrot verið skráð sem umtalsvert fleiri en allt árið í fyrra. Á myndinni hér fyrir neðan sést fjöldi skráðra gjaldþrota fyrirtækja frá árinu 2022 á mánaðargrundvelli. Á fyrstu mánuðum ársins 2023 eru greinilega skráð mun fleiri gjaldþrot en árið 2022.

Árangurslausum fjárnámum fór fækkandi frá árinu 2019 en tóku að aukast á ný árið 2022 eins og myndin hér fyrir neðan sýnir. Fjöldi árangurslausra fjárnáma fyrirtækja var á bilinu 1.800 til 2.600 árin 2020 til 2022 í samanburði við 3.500 og 3.800 árin 2018 og 2019. Í lok mars voru samtals skráð 296 árangurslaus fjárnám en á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 voru skráð 202 árangurslaus fjárnám.

Vanskil einstaklinga

Þegar litið er til vanskila einstaklinga sést að þróunin er með sambærilegum hætti og hjá fyrirtækjum. Nýskráningum á 12 mánaða tímabili fór fækkandi frá 2019 til ársloka 2022 þegar þeim fór fjölgandi. Hlutfall nýskráninga einstaklinga lækkaði úr 2,3% í júní 2019 í 0,8% í nóvember 2022 en var búið að hækka í 1,3% í mars 2023.


Fjallað var um greiningu Creditinfo í Morgunblaðinu föstudaginn 14. apríl 2023:

Einnig var fjallað um greiningu Creditinfo í kvöldfréttum RÚV 15. apríl síðastliðinn.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    90 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    116 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    51 deilingar
    Share 37 Tweet 6
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?