Sex manns voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald, fimm þeirra til 31. janúar og einn til 27. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, sem snýr m.a. að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.
Sexmenningarnir voru handteknir sl. sólarhring samhliða mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.
Umræða