• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Frumvarp um breytingar á lögum um framsal sakamanna og aðstoð í sakamálum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur mælt fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 13/1984, um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, skilvirk og samræmd málsmeðferð.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum er miða að því að uppfæra ákvæði laganna um framsal sakamanna í samræmi við sambærileg ákvæði laga um meðferð sakamála og gera feril réttarbeiðna til og frá erlendum ríkjum skilvirkari.

Í fyrstu málsgrein núgildandi laga segir: ,,Þann, sem í erlendu ríki er grunaður, ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, er heimilt að framselja samkvæmt lögum þessum.“

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur, Rögnu Bjarnadóttur og Hildi Sunnu Pálmadóttur frá dómsmálaráðuneyti og Helga Magnús Gunnarsson frá ríkissaksóknara. Nefndinni bárust engar umsagnir um málið.

Meiri hlutinn telur það til bóta að ferill réttarbeiðna sé einfaldaður sem og færður til samræmis við nútímaskipan ákæruvalds. Í því samhengi hvetur meiri hlutinn dómsmálaráðuneytið til þess að kanna hvort tilefni sé til að skoða heildstætt málsmeðferð réttarbeiðna, m.a. hvort gera eigi í þessum efnum samninga við fleiri ríki um framsal eða aðra aðstoð í sakamálum til þess að geta flýtt meðferð beiðna og stuðlað að meginreglu sakamálaréttarfars um hraða málsmeðferð.

Meiri hlutinn leggur til fáeinar orðalagsbreytingar sem eru til leiðréttingar og lagfæringar en er ekki ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.

Undir nefndarálitið rita Páll Magnússon, Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson.

 

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?