• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 15. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjárhagsstaða launafólks versnað milli ára

60% í hópi einstæðra foreldra á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og 20% búa við skort á efnislegum gæðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Tæplega þriðjungur vinnandi fólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun sem Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi nýverið. Könnunin sýnir að staðan hefur versnað síðasta árið.

Tæplega tíundi hluti launafólks býr við skort á efnislegum gæðum og um fjórir af hverjum tíu gætu ekki mætt óvæntum 80 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.

„Það er gríðarlega alvarlegt að sjá að fjárhagsstaða launafólks versnar milli ára og ástandið er verst hjá einstæðum foreldrum,“ segir Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu. „Við sjáum að um sex af hverjum tíu í hópi einstæðra foreldra sem eru á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu búa við skort á efnislegum gæðum.“

Í könnuninni var einnig spurt um áhrif heimsfaraldursins á launafólk. Ríflega helmingur finnur fyrir meira álagi í starfi vegna faraldursins. Hlutfallið er hæst meðal kvenna sem vinna hjá ríki og sveitarfélögum þar sem sjö af hverjum tíu sögðust finna fyrir því að álagið hafi aukist.

Andlegri heilsu launafólks fer hrakandi milli ára. Ríflega þrjár af hverjum tíu konum og tæplega þrír af hverjum tíu körlum mælast með slæma andlega heilsu, sem er mun meira en í sambærilegri könnun sem gerð var fyrir ári. Þá mældist andleg heilsa slæm hjá um tveimur af hverjum tíu.

„Könnun Vörðu veitir skýra innsýn inn í veruleika launafólks sem hefur tekið á sig þungar byrgðar í heimsfaraldrinum, hvort sem litið er til fjárhagslegra þátta eða hrakandi andlegrar heilsu. Enn á ný fáum við sönnur þess að sumt fullvinnandi fólk nær ekki endum saman og getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Það er verk að vinna í næstu kjarasamningum og í félagslegri umgjörð samfélagsins.“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands.

„Þessar niðurstöður segja ekki bara sögu um fullorðna einstaklinga á vinnumarkaði heldur sögu fjölda barna sem búa við ófullnægjandi lífsskilyrði vegna aðgerðaleysis stjórnvalda. Foreldrar þeirra barna eru líklegri til að glíma við andleg veikindi, þau fá sjaldnar næringarríka máltíð og nauðsynlegan fatnað en önnur börn, búa frekar við skort og líklegri til að þurfa að flytja oft. Þeirra hagur verður ekki tryggður með því að halda áfram á þeirri braut að lækka skatta á þá ríkustu, viðhalda kerfum þar sem örfáir einstaklingar græða á sameiginlegum auðlindum eða með aðhalds- og niðurskurðarkröfu á mikilvægar stofnanir, heilbrigðis- og félagsþjónustu og menntakerfið.,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Könnun Vörðu var gerð rafrænt dagana 24. nóvember til 9. desember 2021 meðal félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands og BSRB. Könnunin var þýðisrannsókn og því opin öllum félagsmönnum heildarsamtakanna tveggja. Alls bárust 8.768 svör og voru svörin vigtuð eftir kyni og aðildarfélögum til að endurspegla betur þýðið.

Lesa má skýrslu Vörðu með niðurstöðunum í heild sinni hér.

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?