Almannavarnir hafa gefið út viðvörun vegna mögulegrar hláku á morgun, föstudaginn 20. janúar, en flestar ár eru ísi lagðar. Sterkar líkur eru á að lægð gangi yfir landið með nokkrum hlýindum og mikilli úrkomu.
Í aðstæðum sem þessum hafa orðið umtalsverð flóð og gripir orðið innlyksa. Hafi búfjáreigendur á þessum svæðum ekki komið þeim fyrir í landi sem liggja hærra hefur reynst erfitt að koma þeim til hjálpar. Því eru eigendur útigangsgripa þar sem líkur geta verið á flóðum beðnir um að huga að því hvort efni séu til að koma þeim á hærra land fari svo að ár ryðji sig.
https://gamli.frettatiminn.is/19/01/2023/gul-vidvorun-um-allt-land-2/
Umræða