Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur framleiðslulotu af kjúklingi frá Reykjagarði vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað framleiðsluloturnar af markaði og sent út fréttatilkynningu.
Innköllunin á einungis við eftirtaldar framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónu kjúklingur.
- Framleiðandi: Reykjagarður hf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
- Rekjanleikanúmer: 001-22-49-4-02, pökkunardagur 12.01.2023.
- Rekjanleikanúmer: 001-22-49-5-10, pökkunardagur 13.01.2023.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar, Hagkaupa, Nettó, Costco, Kjörbúðarinnar, Heimkaup og Extra.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent að neyta hennar ekki en eru beðnir að skila vörunni til viðkomandi verslunar eða beint til Reykjagarðs hf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Reykjagarði
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Umræða