• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kröpp og dýpkandi lægð nálgast – Appelsínugul viðvörun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. febrúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nú nálgast kröpp og dýpkandi lægð sunnan úr hafi, sem veldur því að hvessir talsvert úr austri og síðar norðaustri og fer að snjóa síðdegis, fyrst syðst á landinu. Í kjölfarið gerir talsvert hríðarveður undir Eyjafjöllum og í Mýrdal og síðar einnig á Suðausturlandi og Austfjörðum. Seint í kvöld og nótt hvessir einnig með hríð á Norðurlandi. Því hafa verið sendar út gular og appelsínugular viðvaranir og eru ökumenn hvattir til að búa sig undir alvöru vetrarveður í dag. Hlýnar þó heldur í kvöld og fer að rigna við austurströndina.
Í fyrramálið gengur á með norðaustanhvassviðri eða -stormi og ofankomu á norðanverðu landinu, en birtir til syðra. Dregur smám saman úr vindi seinni partinn og kólnar heldur. Engin hlýindi né rólegheit er að sjá í veðurkortum næstu daga, enda um að gera að þreyja góuna.
Veðurhorfur á landinu
Hæg suðlæg eða breytileg átt og dálítil él sunnan- og vestanlands, en annars þurrt að kalla. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt eftir hádegi og þykknar upp, 18-25 m/s suðaustan til og einnig allra syðst seinni partinn með snjókomu eða slyddu. Hvessir víðar á landinu með ofankomu í kvöld, en hægara og úrkomulítið á Vesturlandi. Hlýnar heldur í veðri í dag og fer að rigna með austurströndinni seint í kvöld.
Norðaustan 15-23 m/s í fyrramálið, hvassast NV til og snjókoma eða éljagangur, en birtir til syðra. Norðlægari og dregur smám saman úr vindi seinni partinn og kólnar í veðri.

Appelsínugul viðvörun vegna veðurs: Suðausturland. Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Breiðafjörður, Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland og Miðhálendi


Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan og norðaustan 15-23 m/s framan af degi, en dregur síðan úr vindi, 13-20 síðdegis, hvassast NV til. Snjókoma eða él á N-verðu landinu, en hægara og bjartviðri syðra. Hiti nálægt frostmarki.
Á föstudag:
Norðaustan 10-15 m/s og éljagangur, en austlægari og snjókoma eða slydda syðst. Hiti kringum frostmark.
Á laugardag:
Norðlæg átt og él víða á landinu, en bjartviðri SV-lands. Kólnandi veður.
Á sunnudag:
Vestlægar áttir og víða él, en léttskýjað NA til. Frost 2 til 10 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Líklega breytilegar áttir með éljum á víð og dreif og talsverðu frosti á öllu landinu.
Spá gerð: 18.02.2020 20:01. Gildir til: 25.02.2020 12:00.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?