Rétt fyrir klukkan 14:00 í dag barst lögreglu og sjúkraflutningamönnum aðstoðarbeiðni vegna 10 ára drengs sem grafist hafði í snjóflóði í Hamrinum við Hveragerði. Hafði snjóhengja fallið niður hlíð Hamarsins þar sem börn voru að leik.
14 ára bróðir drengsins sýndi mikið snarræði og hárrétt viðbrögð er hann staðsetti bróður sinn í flóðinu, gróf frá andliti hans og hringdi eftir aðstoð til Neyðarlínu 112. Hjálparsveit Skáta, Hveragerði, var kölluð til og sinnti björgun drengsins og kom honum í sjúkrabifreið. Að sögn foreldra drengsins mun líðan hans vera eftir atvikum góð.
Lögregla og Slysavarnarfélagið Landsbjörg vill beina þeim tilmælum til fólks að vera ekki á ferð við Hamarinn í Hveragerði eða við hlíðar hans. Veðuraðstæður hafa skapað fjölda snjóhengja sem hætta er á að geti fallið.
Umræða