Þorsteinn Pálsson f.v. formaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina sem að nú situr hafa verið stofnaða til þess að halda við óbreyttu ástandi þar sem að þeim lægst launuðu og bótaþegum er haldið föstum niðri í kjörum. Hann segir verkalýðsfélögin vera að bregðast við ástandinu og að ef að verkalýðsfélögin beiti verkföllum, fái þau þá niðurstöðu út úr kjaraviðræðum sem að þau óska eftir.
Þorsteinn Pálsson segir að verðtryggingin komi verst niður á launafólki sem að fái greidd laun út í mynt sem er ekki gjaldgeng.
,,Forstjóri sem starfar í sjávarútvegi og er að byggja nýja fiskvinnslustöð, hann starfar utan krónuhagkerfisins. Hann fær lán á lægstu vaxtakjörum til þess að byggja þessa fiskvinnslu en verkakonan sem er að vinna hjá honum og er að kaupa tveggja herbergja íbúð þarf að borga vexti sem eru margfalt hærri, fimmfalt hærri.
Þetta er bara óréttlæti sem að stjórnvöld vilja ekki taka á vegna þess að það eru ákveðin hagsmunaöfl sem að toga í flokkana bæði frá hægri og vinstri til þess að viðhalda þessum órétti. Menn hafa núna myndað ríkisstjórn til þess að vernda þetta misrétti og óréttlæti.“ Segir f.v. formaður og ráðherra Sjálfstæðiflokksins.
Þorsteinn segir að stefnan hafi verið að fjölga láglaunastörfum en engin hagvöxtur hafi verið í útflutningi í þekkingargreinum og að fólk sem að þjóðin sé að mennta hverfi svo af landi brott til vinnu í hálaunastörfum í útlöndum. Við flytjum inn í staðinn ódýrt vinnuafl til þess að vinna á Íslandi segir Þorsteinn Pálsson.
https://www.facebook.com/jonaxelegilsson/videos/634836143597316/
Fréttin var fyrst birt þann 3. mars og vitnað í viðtal í Silfrinu þann sama dag.