• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Flóttafólki frá Úkraínu leyft að hafa með sér gæludýr

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Að fenginni umsögn Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra ákveðið að veita undanþágu frá gildandi banni við innflutningi gæludýra frá Úkraínu að uppfylltum skilyrðum. Ráðuneytið hefur leitað til þeirra einangrunarstöðva sem starfa á landinu og ríkir þar góður vilji til að finna viðeigandi  lausnir.

Gert er ráð fyrir að um 1%  fólks sem nú flýr stríðið í Úkraínu hafi með sér gæludýr sín á flóttanum. Til að bregðast við þeirri stöðu á mannúðlegan hátt hefur matvælaráðuneytið kannað hvort hægt sé að taka á móti þeim dýrum sem fylgja eigendum sínum til Íslands.

Á fundi yfirdýralækna á Norðurlöndum sem haldinn var nýverið var mælst til að aðildarríki ESB væru sveigjanleg við móttöku gæludýra flóttafólks frá Úkraínu. Í framhaldinu hafa mörg Norðurlandanna veitt undanþágur.

Nokkur skilyrði fyrir undanþágu

Skilyrðin eru sett meðal annars  með tilliti til þess að útbreiðsla hundaæðis er talsverð í Úkraínu en hundaæði hefur aldrei greinst á Íslandi. Hundaæði er alvarlegur sjúkdómur bæði fyrir dýr og menn. Afleiðingar þess að hundaæði berist til Íslands væru mjög alvarlegar og ber því að sýna ítrustu varkárni.

Eitt af skilyrðum þessarar undanþágu  er að dýr sé flutt beint á einangrunarstöð við komu til landsins og fái strax almenna heilbrigðisskoðun dýralæknis. Ef dýr er ekki örmerkt skal það merkt af dýralækni. Einnig verða óbólusett dýr bólusett gegn hundaæði og mótefni mæld 30 dögum síðar. Ef niðurstöður eru fullnægjandi skal dýr vera áfram í einangrun í 3 mánuði og það jafnframt meðhöndlað gegn innri og ytri sníkjudýrum að lágmarki tvisvar.

„Flóttafólk frá Úkraínu hefur gengið í gegnum ólýsanlegar hörmungar og því er mikilvægt að við tökum á móti þeim á mannúðlegan hátt. Það er ekki á það bætandi að þurfa að skilja við dýrin sín við þessar aðstæður,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra um þessa ákvörðun.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Næsta lægð er væntanleg

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?