Yfirlýsing utanríkisráðherra ári eftir brottvísun Rússlands úr Evrópuráðinu
Ár er liðið frá því að ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykkti að vísa Rússlandi úr ráðinu. Af því tilefni sendi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndarinnar yfirlýsingu.„Rússlandi var vísað úr Evrópuráðinu fyrir ólögmæta og tilefnislausa árás á Úkraínu, sem er gróft brot á alþjóðalögum, þar á meðal stofnsáttmála Evrópuráðsins.
Með þessu sýndi Evrópuráðið glöggt að það stendur vörð um grunngildi stofnunarinnar og styður Úkraínu,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.Ráðherra áréttar í yfirlýsingunni að rússnesk stjórnvöld beri ábyrgð á því að svipta almenning í Rússlandi þeirri vernd sem Mannréttindadómstóll Evrópu veitti honum. Þá beri Rússlandi skylda til að framfylgja öllum dómum Mannréttindadómstólsins.