6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Snjóflóðið í Brimnesdal

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Sveitir Landsbjargar frá Siglufirði til Akureyrar voru ræstar út, sem og lögregla og sjúkraflutningamenn á Tröllaskaga, þá var einnig óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Lögreglan á Norðurlandi vestra segir frá aðgerðinni: ,,Eins og við greindum frá eftir hádegið þá fengu viðbragðsaðilar í Eyjafirði tilkynningu kl. 12:27 að snjóflóð hefði fallið á hóp skíðamanna innarlega í Brimnesdal í Ólafsfirði, nánar tiltekið undir Kistufjalli. Fram kom að þarna væri um 7 manna hóp að ræða og væri allavega einn þeirra talsvert slasaður.

Voru sveitir Landsbjargar frá Siglufirði til Akureyrar ræstar út, lögregla og sjúkraflutningamenn á Tröllaskaga og þá var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri.

Um tveimur klukkustundum eftir að útkall barst komust sjúkraflutningamenn til hópsins. Kom þá í ljós að annar skíðamaður var einnig lítilsháttar slasaður. Hlúð var að hinum slösuðu og búið um þau til flutnings. Voru þau flutt niður Brimnesdalinn og þar í sjúkrabíl sem flutti þau til Akureyrar. Þyrla LHG gat ekki aðhafst á slysavettvangi vegna veðurskilyrða en hún var kominn til Ólafsfjarðar áður en flutningur á hinum slösuðu til byggða hófst.

Verkefnið gekk vel fyrir sig en aðstæður voru mjög krefjandi sökum úrkomu, snjóblindu og mikilar snjóflóðahættu á svæðinu. Á leið sinni á vettvang sáu viðbragðsaðilar hvar snjóflóð höfðu fallið á nokkrum stöðum í dalnum. Viljum við árétta hér að mikil snjóflóðahætta er á Tröllaskaga og nálægum útivistarsvæðum til fjalla. Nánar um það má finna á vef Veðurstofunnar.

Þökkum við öllum sem komu að þessu verkefni og voru störf þeirra til fyrirmyndar sem endra nær.“

www.vedur.is/ofanflod/snjoflodaspa#region