• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreind svæði í Grindavík

Grindavíkingum heimilt að dvelja og starfa í bænum

Fréttatilkynning frá lögreglustjóra

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra Skógfells sl. laugardagskvöld eftir skammvinna skjálftavirkni.  Dregið hefur úr virkni og hraunrennsli.  Gosið hefur nú sjö sinnum frá 19. mars 2021 og er þetta eldgos það fjórða í röðinni á jafnmörgum mánuðum.  Vísbendingar eru um að landris haldi áfram í Svartsengi eftir upphaf gossins.

Fyrirvari viðbragðsaðila nú var enginn en vel tókst til með að rýma bæði Grindavík og eins Bláa lónið þar sem fjöldi gesta var samankominn.

Í gær stóð til að landa úr skipum í Grindvíkurhöfn en það var ákvörðun viðbragðsaðila að heimila það ekki m.a. vegna mengunarhættu og óvissu með framgang hraunrennslis fyrir ofan Suðurstrandarveg.   Þá er hluti Grindavíkurvegar undir hrauni og sú flóttaleið úr sögunni í einhverja daga.

Lítil sem engin hreyfing er nú á hraunrennsli bæði inn í Svartsengi og eins fyrir ofan Suðurstrandarveg.  Það er mat lögreglustjóra að ekki stafi ógn af hraunrennsli inni í Grindavík við núverandi aðstæður.  Þá er fylgst vel með hraunrennsli fyrir ofan Suðurstrandarveg sem ógnar ekki veginum eins og staðan er í dag.   Fylgst er vel með mengun inn á merktu hættusvæði.   Í dag er vindátt hagstæð og ekki ætti að gæta mengunar inn í Grindavík.  Ef og þegar hætta er talin á að loftmengun ógni heilsu manna getur komið til þess að aðgengi inn í Grindavík verði takmarkað.  

Þeir sem eiga erindi inn í Grindavík er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/ 

Með hliðsjón af framansögðu er það ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum.   Ekki er mælt með því að fólk dvelji eða starfi í bænum að næturlagi.   

Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga:

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara.   Hætta er á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum.  Hætta er á gasmengun.  Þá getur hætta stafað af hraunflæði. 
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Þá er það forsenda fyrir opnun inn í Bláa Lónið og Northern Light Inn að hægt verði að opna flóttaleið inn á Grindavíkurveg og inn á Reykjanesbraut.   Þannig háttaði til þegar starfsemi hófst þar að nýju eftir eldgosið í febrúar.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.

Lokunarpóstar eru við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg og Suðurstrandarveg.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.  Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.

Unnið er allan sólarhringinn við gerð varnargarða á virkum dögum.   Píparagengi hefur störf að nýju í dag.  Framkvæmdir við að hleypa köldu vatni á bæinn eru í undirbúningi hjá Grindavíkurbæ í samvinnu við almannavarnir.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

Framangreint fyrirkomulag verður tekið til endurskoðunar föstudaginn 22. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Lögreglan rannsakar alvarlegt atvik á hóteli – Einni hæð hót­els­ins lokað af sér­sveitinni

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Alvarleg líkamsárás – Lögreglumenn veittu árásarþola fyrstu hjálp

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Kona í gæsluvarðhaldi og grunuð um morð á dóttur og eiginmanni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Húsleit í miðborginni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Þögn vegna ótta – Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?