58 vanfóðraðar kindur aflífaðar
Matvælastofnun hefur svipt sauðfjárbónda á Austurlandi hluta fjár hans.
Féð var illa á sig komið vegna vannæringar og ekki hugað líf.
Alls 58 vanfóðraðar kindur voru aflífaðar í aðgerðum stofnunarinnar sl. föstudag
Undanfarin ár hefur Matvælastofnun ítrekað haft afskipti af búskap bóndans sökum margvíslegrar vanhirðu. Í vetur hefur náið eftirlit verið haft með býlinu.
Við eftirlit stofnunarinnar í mars höfðu kröfur stofnunarinnar um úrbætur ekki verið virtar og ástand versnað. Þriðjungur fjárins sem var holdastigað reyndist vannærður (holdastig 1,5 eða neðar af 5 á holdastigunarkvarða en 2-4 telst viðunandi eða gott). Ástæða vannæringar er vanfóðrun og léleg heygæði. Ljóst var að margar kindur höfðu orðið fyrir varanlegum skaða og að þeim yrði ekki bjargað.
Við mat á niðurstöðum holdastigunar þarf að taka tillit til aldurs, meðgöngu og árstíma. Á þessum árstíma eru ær á síðari hluta meðgöngu, fóstrin taka mikið til sín og því er fóðurþörf mikil og ekki síst eftir burð til að framleiða mjólk. Af þessum ástæðum kemur vannæring hratt fram og erfitt að snúa þeirri þróun við.
Áfram verður unnið að úrbótum fyrir féð sem eftir lifir á bænum og eru frekari aðgerðir fyrirhugaðar síðar í mánuðinum með það að markmiði að tryggja velferð fjárins eins og kostur er.